Námskeið í stjörnuljósmyndun

Sævar Helgi Bragason 17. feb. 2015 Fréttir

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness stendur fyrir námskeiði í stjörnuljósmyndun laugardaginn 14. mars og sunnudaginn 15. mars næstkomandi.

  • Nokkrar ljósmyndir frá Babak

Kennari námskeiðsins verður ljósmyndarinn Babak Tafreshi, einn virtasti næturljósmyndari heims. Námskeiðið er ætlað byrjendum og lengra komnum.

Babak Tafreshi
Babak Tafreshi

Babak A. Tafreshi er íranskur ljósmyndari og vísindablaðamaður. Hann er stofnandi og stjórnandi alþjóðlega ljósmyndaverkefnisins The World at Night (TWAN), ljósmyndari og greinarhöfundur fyrir Sky & Telescope tímaritið og National Geographic, sem og einn af ljósmyndurum Stjörnustöðvar Evrópulanda á suðurhveli (ESO). Árið 2009 hlaut Babak Lennart Nilsson verðlaunin, ein virtustu vísindaljósmyndaverðlaun heims, fyrir framlag sitt til stjörnuljósmyndunar. Babak hefur haldið fjölda ljósmyndanámskeiða við frábæran orðstír og er það mikill fengur að fá hann til að halda námskeið fyrir íslenska ljósmyndara.

Meðal viðfangsefna námskeiðsins má nefna:

  • Myndvinnsla

  • Undirstöðuatriði náttúru- og stjörnuljósmyndunar

  • Ljósmyndabúnaður, myndavélar, linsur og stæði

  • Lýsingartími, ljósnæmni o.s.frv. í landslags- og stjörnuljósmyndun

  • Langtímaverkefni í himinljósmyndun

  • Stjörnurákir (star-trails)

  • „Time-lapse“ myndskeið

  • Víðmyndir af næturhimninum

Námskeiðið fer fram á Hótel Rangá og hefst klukkan 16:00 og stendur til kl. 21:00 bæði kvöldin. Kennsla er bæði verkleg og bókleg.

Verð kr.: 20.000 (15.000 kr fyrir félagsmenn í Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness)

Innifalið í verðinu er kvöldverður bæði kvöldin og létt snarl

Athugið að fjöldi þátttakenda í námskeiðinu er takmarkaður svo hægt sé að sinna öllum vel.

Því miður er uppselt á námskeiðið. Miðað við áhugann verður það endurtekið fyrr en síðar.


Stjörnurákir yfir ALMA. Mynd: ESO/Babak Tafreshi
Stjörnurákir yfir ALMA. Mynd: ESO/Babak Tafreshi