Krakkafréttir

Öfugsnúin stjarna

  • Cassiopeia A, Cas A, sprengistjörnuleif
    Til vinstri er líkan af innviðum stjörnunnar sem sprakk og myndaði sprengistjörnuleifina Cassiopeia A sem sést hægra megin á mynd Chandra röntgengeimsjónauka NASA. Litirnir tákna mismunandi frumefni og sýna dreifingu þeirra í leifunum. Gögnin sýna að brennisteinn og kísill dreifast á svipaðan hátt, sem og magnesíum og neon. Mynd: NASA/CXC/M. Weiss/GSFC/U.Hwang & J.Laming

Myndin hér til hægri sýnir stjörnu fyrir og eftir mikla breytingu. Vinstra megin er tekning sem sýnir hvar mismunandi efni í stjörnunni var að finna. Þessi innyfli eru frumefni. Hægra megin er alvöru ljósmynd af sömu stjörnu eftir að hún sprakk í tætlur.

Stjörnufræðingar nefna slíkar stjörnur sprengistjörnur og leifarnar eru sprengistjörnuleifar. Sprengistjörnuleifin á myndinni til hægri er kölluð Kassíópeia A eða Cas A til styttingar.

Á báðum myndum tákna litirnir mismunandi frumefni í stjörnunni. Stjörnufræðingar telja að áður en stjarnan sprakk hafi heilmikið af frumefnunum járni (blátt) og brennisteini og kísli (grænt) veið í miðju hennar. Síðan hafi þessi frumefni þotið út úr stjörnunni í átt að ytri brúnum leifanna eins og sjá má af bláu og grænu litunum í ytri hluta Cas A á myndinni hægra megin. Í raun er stjarnan orðin öfugsnúin!

Skemmtileg staðreynd: Fyrir utan fyrirbæri í sólkerfinu okkar er Cas A öflugasta útvarpsstöðin á næturhimninum!

Þessi frétt er unnin í góðu samstarfi við UNAWE og Space Scoop unawe1219