Krakkafréttir

Stærstu og heitustu stjörnurnar lifa sjaldnast einar

  • O-stjörnur, vampírustjörnur
    Ný rannsókn sem studdist við gögn frá Very Large Telescope ESO, hefur leitt í ljós að heitustu og björtustu stjörnurnar, þekktar sem O-stjörnur, eru gjarnan í þéttum pörum. Í mörgum slíkum tvístirnakerfum flyst massi frá einni stjörnu til hinnar, líkt og um einskonar vampírustjörnu væri að ræða, eins og sést á þessari teikningu. Mynd: ESO/L. Calçada/S.E. de Mink

Alheimurinn er æði fjölbreyttur staður og í honum eru fjölmargar stjörnur gerólíkar sólinni okkar.

Hvernig stjarna er á litinn veitir stjörnufræðingi upplýsingar um þyngd og hitastig hennar. Heitustu og þyngstu stjörnurnar eru bláar á meðan þær köldustu og léttustu eru rauðar. (Þetta er andstætt því hvernig við notum blátt og rautt fyrir heitt og kalt í daglegu lífi, eins og á krönum og í veðurfréttum.)

Stjörnur eru settar í eftirfarandi flokka eftir hitastigi, frá þeim heitustu til hinna köldustu: O, B, A, F, G, K og M. Sólin okkar er meðalheit stjarna í G-flokki. Eins og sjá má eru flokkarnir ekki í stafrófsröð. Á ensku er til einföld setning til að muna röðina: „Oh, Be A Fine Girl/Guy, Kiss Me“. (Getur þú búið til einfalda setningu á íslensku til að hjálpa þér að muna röðina? Skoðaðu verkefnið neðst í fréttinni.)

Fyrir skömmu rannsakaði alþjóðlegur hópur stjörnufræðinga 71 stjörnu af O-gerð — risastjörnurnar í alheiminum. Út frá flokkunum sérð uað þessar stjörnur eru óhemju heitar. Ekki er svo ýkja langt síðan að stjörnufræðingar héldu að flestar stjörnur af O-gerð væru langt frá næstu nágrönnum sínum. En í nýju rannsókninni kom í ljós að 3 af hverjum 4 stjörnum af O-gerð verja ævi sinni með annarri stjörnu, þ.e. í pörum. Raunin er sú að 1 af hverjum 3 pörum eru svo þétt saman að þær munu að lokum renna saman í eina stjörnu!

Nýttu sköpunargáfuna: Við viljum gjarnan sjá tillögur ykkar á einfaldri setningu á íslensku til að hjálpa okkur að muna röð stjarnanna, frá þeim heitustu til hinna köldustu (O, B, A, F, G, K og M). Sendu okkur endilega þína hugmynd á [email protected] ásamt nafni (eða nafni skólans ef um bekk er aðr æða), aldur og land.

Þessi frétt er unnin í góðu samstarfi við UNAWE og Space Scoop unawe1237

UNAWE, Universe Awareness for Young Children Space Scoop