Vetrarbrautin yfir Reynisfjöru

2. febrúar 2015

  • Vetrarbrautin yfir Reynisfjöru. Mynd: Stephane Vetter
    Vetrarbrautin yfir Reynisfjöru. Mynd: Stephane Vetter

Vetrarbrautin víkur fyrir árbjarmanum yfir Reynisfjöru á þessari stórglæsilegu mynd sem franski ljósmyndarinn Stephane Vetter tók í febrúar síðastliðnum. Reynisdrangar standa hnarreistir upp úr sjónum og fylgjast með milljörðum stjarna hverfa í morgunroðanum.

Eins og sjá má er vetrarbrautaslæðan ekki samfelld heldur klofinn af dökkum skýjum. Þessi dökku ský er kalt gas og ryk — hráefni í nýjar stjörnur, ný sólkerfi og jafnvel nýtt líf.

Bjartasta stjarnan á myndinni er Vega í Hörpunni en lengra til vinstri sést önnur björt stjarna, risastjarnan Deneb í Svaninum. Við hlið hennar, vinstra megin í stefnu klukkan átta, glittir í rauðleitt ský, Norður Ameríkuþokuna. Þar eru nýjar stjörnur að myndast úr kalda gasinu og rykinu.

Mynd: Stephane Vetter

Texti: Sævar Helgi Bragason

Ummæli