Murchison loftsteinninn

  • Murchison, loftsteinn, kolefniskondrit
    Brot úr Murchison loftsteininum. Mynd: Wikimedia Commons

1. Loftsteinninn

Klukkan 10:58 að morgni 28. september árið 1969 birtist bjartur vígahnöttur á himninum yfir bænum Murchison í Victoríufylki í Ástralíu. Steinninn klofnaði í þrennt og skildi eftir sig mikla slóð. Hálfri mínútu síðar heyrðust drunur. Á stóru svæði í nágrenni bæjarins fundust mörg brot sem samanlagt vógu yfir 100 kg, þar af var þyngsta brotið 7 kg.

Rannsóknir á steininum sýndu að um kolefniskondrít var að ræða, eina algengustu tegund loftsteina. Þær sýndu ennfremur að bergið hafði komist í snertingu við vatn á móðurhnetti sínum áður en hann klofnaði af og féll til Jarðar. Um 10% af eru vatnaðar steindir. Rétt eins og kolefniskondrít af sömu gerð og Murchison loftsteinninn inniheldur hann innlyksur úr kalsíum og áli.

1.2 Lífræn efnasambönd

Murchison, loftsteinn, kolefniskondrit
Brot úr Murchison loftsteininum sem féll í Ástralíu árið 1969. Hann er kolefniskondrít. Mynd: Wikimedia Commons

Mesta athygli vöktu þó amínósýrur eins og glýsín, alanín og glútamínsýru sem fundust í steininum. Um 2% af honum eru úr lífrænum efnasamböndum. Þetta sýnir að byggingarefni lífs voru til staðar í þokunni sem myndaði sólkerfið okkar og að loftsteinar gætu hafa átt sinn þátt í uppruna lífsins á Jörðinni.

1.3 Elsta efni sem fundist hefur á Jörðinni

I janúar árið 2020 tilkynntu vísindamenn sem rannsökuðu Murchison-loftsteininn, að 7,5 milljarða ára gamlar efnisagnir hefðu fundist í steininum. Er það elsta efni sem fundist hefur á Jörðinni til þessa.

Aldursgreining varð gerð þannig að brot úr steininum voru mulin í duft. Duftið var svo leyst upp í sýru þannig að stjörnurykið sjálft sat eftir. Því má líkja við að brenna heystakk i leit að nálinni.

Til að aldursgreina agnirnar var magn af neon-samsætum mældar. Neonsamsæturnar verða til þegar geimgeislar lenda á föstu efni í steininum. Því lengur sem geimgeislarnir herja á efninu í steininum, því meira af neon-samsætum urðu til. Þessi geimgeislatalning leiddi í ljós að flestar agnir steinsins voru 4,6 til 4,9 milljarða ára gamlar en elsta kornið 7,5 milljarða ára. Uppgötvunin bendir til þess að fyrir rúmum sjö milljörðum ára hafi orðið hrina stjörnumyndunar í Vetrarbrautinni okkar.

Tengt efni

Heimildir

  1. Murchison meteorite“ — Wikipedia: The Free Encyclopedia (sótt: 28.06.13)

  2. The Murchison Meteorite Story. Melbourne Museum (sótt: 28.06.13)
  3. Meteorite contains the oldest material on Earth: 7-billion year-old stardust (14.01.20)

- Sævar Helgi Bragason