Úrsítar

  • Óríonítar
    Óríonítar. Mynd: Wikimedia Commons

Úrsíta má rekja til halastjörnunnar 8P/Tuttle. Halastjarnan gengur um sólina á rétt rúmlega þrettán árum og tilheyrir Júpíter-halastjörnufjölskyldunni. Bandaríski stjörnufræðingurinn Horace Parnell Tuttle fann halastjörnuna hinn 5. janúar árið 1858. Úrsíta loftsteinadrífan uppgötvaðist hins vegar ekki fyrr en í byrjun 20. aldar.

Stjörnuhröpin í Úrsíta loftsteinadrífunni eru alla jafna fremur dauf.

Hvenær er best að fylgjast með Úrsítum?

  • Heppilegasti tíminn til að fylgjast með Úrsítum er eftir miðnætti. Á Íslandi er stjörnumerkið Litlibjörn þó pólhverft og því alltaf á lofti.

  • Best er að fylgjast með drífunni fjarri ljósmenguðum bæjum. Ef tunglið er á lofti getur það haft töluverð áhrif á fjölda sýnilegra stjörnuhrapa.

  • Ekki er þörf á neinum sjóntækjum, svo sem handsjónaukum eða stjörnusjónaukum, en hins vegar getur verið gaman að skoða rykslóðirnar í gegnum handsjónauka.

  • Taktu með þér stól, hlý föt og heitan drykk því nauðsynlegt er að gefa sér tíma þegar fylgst er með loftsteinadrifum, helst í klukkustund eða tvær, að minnsta kosti.

Heimildir

– Sævar Helgi Bragason