Messier 10

Kúluþyrping í Naðurvalda

  • Messier 10, kúluþyrping, Naðurvaldi
    Kúluþyrpingin Messier 10 í Naðurvalda. Mynd: NASA/ESA
Helstu upplýsingar
Tegund: Kúluþyrping
Stjörnulengd:
19klst 57mín  08,99s
Stjörnubreidd:
-04° 05′ 57,6"
Fjarlægð:
14.300 ljósár
Sýndarbirtustig:
+6,4
Stjörnumerki: Naðurvaldi
Önnur skráarnöfn:
NGC 6254

Franski stjörnufræðingurinn Charles Messier uppgötvaði þyrpinguna þann 29. maí árið 1764. Þyrpingin varð 10. fyrirbærið í skrá Messiers yfir þokukennd fyrirbæri á himninum sem líktust halastjörnum. Messier lýsti henni sem fallegri kúlulaga þoku án stjarna. Um tuttugu árum síðar greindi enski stjörnufræðingurinn William Herschel fyrstur manna stjörnur í þyrpingunni.

Messier 10 er í um 14.300 ljósára fjarlægð frá jörðinni og er 83 ljósár í þvermál.

Messier 10 er mjög falleg að sjá í gegnum stjörnusjónauka. Með 80mm linsusjónauka sjást greinilega stakar stjörnur í þyrpingunni en með stærri sjónaukum er hún enn glæsilegri. Auðvelt er að finna þyrpinguna með góðu stjörnukorti (sjá stjörnukort af Naðurvalda).

Tengt efni

Heimildir

  1. Kúluþyrpingin Messier 10 - Mynd vikunnar á Stjörnufræðivefnum

  2. Messier 10, SEDS Messier pages

  3. en.wikipedia.org/wiki/Messier_10

Hvernig vitna skal í þessa grein

  • Sævar Helgi Bragason (2012). Messier 10. Stjörnufræðivefurinn. http://www.stjornuskodun.is/stjornuskodun/djupfyrirbaeri/messierskrain/messier-10 (sótt: DAGSETNING).