Stjörnuskoðun
Stjörnumerkin

Stjörnumerkin

  • stjörnumerkin, Óríon, stjörnumerki
    Stjörnumerkið Óríon.

Allri himinhvelfingunni er skipt í 88 hluta sem við nefnum stjörnumerki. Hvert stjörnumerki er myndað af litlum hópi stjarna sem, frá jörðu séð, sýnast tiltölulega nálægt hver annarri. Stjörnurnar í merkjunum tengjast yfirleitt ekkert innbyrðis enda er fjarlægðin milli stjarnanna og einnig til þeirra mjög mismunandi.

Útlit merkjanna ræðst af hreyfingum stjarnanna sem þau mynda. Þessar stjörnur eru allar svo fjarlægar að hreyfing þeirra frá ári til árs er agnarlítil og sést alla jafna ekki með berum augum og því köllum þær fastastjörnur.

Á milljón árum getur hreyfing stjarnanna þó verið umtalsverð og ef við skoðum til dæmis hvernig Ljónsmerkið á eftir að líta út eftir milljón ár, sjáum við að Ljónið afmyndast. Merkið sem þá verður til minnir ef til vill heldur á útvarpssjónauka, sem verða þá væntanlega löngu úreltir. Þá verður hins vegar gaman að sjá hvernig stjörnuspekin metur persónuleika þess sem fæðist í útvarpssjónaukamerkinu!

Eins og áður segir er fjarlægðin milli stjarnanna í hverju merki mjög mismunandi. Ef við ferðumst nokkur hundruð eða þúsund ljósár út í geiminn og horfum á stjörnumerkið frá hlið, sjáum við allt aðra mynd af því en frá jörðu. Þá kemur í ljós að allar myndirnar á himninum eru tilviljanakenndar og því engin möguleiki á því að merkin geti haft áhrif á líf okkar. Þegar við tölum um að geimþoka, stjörnuþyrping eða vetrarbraut sé í ákveðnu merki, til dæmis Andrómeduvetrarbrautin, er í raun átt við að hún sé fyrir aftan merkið frá jörðu séð.

Stjörnumerki himinsins eru ekki raunveruleg en ímynduðu verurnar og hlutirnir á himninum eiga líklega rætur að rekja til menningarsamfélaga og stjörnufræðinga sem höfðu hagnýt gildi fyrir merkin. Megintilgangur merkjanna var að segja hvaða stjörnur voru hvar á hverjum tíma. Bændur til forna notuðu merkin til þess að vita hvenær skyldi sá og hvenær taka ætti upp uppskeruna, því sum merki sjást aðeins á sérstökum tíma ársins. Til þess að aðstoða sig við að muna merkin var gott að búa til persónur sem þau minntu ef til vill á.

Listi yfir stjörnumerkin

Hér undir er listi yfir öll 88 stjörnumerki himinhvolfsins. Íslensk heiti merkjanna eru úr Orðaskrá um stjörnufræði sem Stjarnvísindafélag íslands gaf út. Kortin sem fylgja voru útbúin af Alþjóðasambandi stjarnfræðinga og Sky & Telesope tímaritinu (Roger Sinnott & Rick Fienberg) en Stjörnufræðivefurinn fékk leyfi til að íslenska þau. Hægt er að smella á kortin og sækja prentvænar útgáfur á pdf-formi. Á kortunum eru tiltekin áhugaverð djúpfyrirbæri sem stjörnuáhugafólk getur séð með sínum eigin sjónaukum. Lykillinn hér undir skýrir táknin á kortunum.

kortalykill

Myndirnar af stjörnumerkjunum eru úr stjörnufræðiforritinu Stellarium. Forritið er ókeypis, á íslensku og virkar bæði fyrir Windows og Apple stýrikerfi. Hægt er að hlaða því niður á sérstakri vefsíðu fyrir íslenska útgáfu Stellarium.

Íslenskt heiti
Latneskt heiti
Eignarfall á latínu
Sýnilegt frá Íslandi
Áhugaverð fyrirbæri
Kort Mynd
Altarið
Ara
Arae
Nei

stjörnukort, stjörnumerki, Altarið
stjörnumerki, Altarið
Andrómeda
Andromeda
Andromedae

M31, M32, M110
stjörnukort, stjörnumerki, Andrómeda
stjörnumerki, Andrómeda
Áttavitinn
Pyxis
Pyxidis
Nei
NGC 2818
stjörnukort, stjörnumerki, Áttavitinn
stjörnumerki, Áttavitinn
Áttungurinn
Octans
Octanis
Nei

stjörnukort, stjörnumerki, Áttungurinn
stjörnumerki, Áttungurinn
Bereníkuhaddur
Coma Berenices
Comae Berenices

M53, M64, M85, M88, M91, M98, M99, M100, NGC 4565
stjörnukort, stjörnumerki, Bereníkuhaddur
stjörnumerki, Bereníkuhaddur
Bikarinn
Crater
Crateris
Að hluta

stjörnukort, stjörnumerki, Bikarinn
stjörnumerki, Bikarinn
Bogmaðurinn
Sagittarius
Sagittarii
Að hluta
M8, M17, M18, M20, M21, M22, M23, M24, M25, M28, M54, M55, M69, M70, M75
stjörnukort, stjörnumerki, Bogmaðurinn
stjörnumerki, Bogmaðurinn
Borðið
Mensa
Mensae
Nei
Stóra-Magellanskýið (að hluta)
stjörnukort, stjörnumerki, Borðið
stjörnumerki, Borðið
Drekinn
Draco
Draconis

M102, Kattaraugað
stjörnukort, stjörnumerki, Drekinn
stjörnumerki, Drekinn
Dúfan
Columba
Columbae
Nei
  stjörnukort, stjörnumerki, Dúfan
stjörnumerki, Dúfan
Dælan
Antlia
Antliae
Nei
NGC 2997
stjörnukort, stjörnumerki, Dælan
stjörnumerki, Dælan
Eðlan
Lacerta
Lacertae

  stjörnukort, stjörnumerki, Eðlan
stjörnumerki, Eðlan
Einhyrningurinn
Monoceros
Monocerotis

M50, Rósettuþokan
stjörnukort, stjörnumerki, Einhyrningurinn
stjörnumerki, Einhyrningurinn
Fiskarnir
Pisces
Piscium

M74
stjörnukort, stjörnumerki, Fiskarnir
stjörnumerki, Fiskarnir
Fljótið
Eridanus
Eridani
Að hluta

stjörnukort, stjörnumerki, Fljótið
stjörnumerki, Fljótið
Flugan
Musca
Muscae
Nei
NGC 4833
stjörnukort, stjörnumerki, Flugan
stjörnumerki, Flugan
Flugfiskurinn
Volans
Volanis
Nei
  stjörnukort, stjörnumerki, Flugfiskurinn
stjörnumerki, Flugfiskurinn
Folinn
Equuleus
Equulei

  stjörnukort, stjörnumerki, Folinn
stjörnumerki, Folinn
Fönix
Phoenix
Phoenicis
Nei
  stjörnukort, stjörnumerki, Fönix
stjörnumerki, Fönix
Gaupan
Lynx
Lyncis

  stjörnukort, stjörnumerki, Gaupan
stjörnumerki, Gaupan
Gíraffinn
Camelopardalis
Camelopardalis


stjörnukort, stjörnumerki, Gíraffinn
stjörnumerki, Gíraffinn
Harpan
Lyra
Lyrae

M56, M57
stjörnukort, stjörnumerki, Harpan
stjörnumerki, Harpan
Herkúles
Hercules
Herculis

M13, M92
stjörnukort, stjörnumerki, Herkúles
stjörnumerki, Herkúles
Hérinn
Lepus
Lepors
Að hluta
M79
stjörnukort, stjörnumerki, Hérinn
stjörnumerki, Hérinn
Hjarðmaðurinn
Boötes
Boötis


stjörnukort, stjörnumerki, Hjarðmaðurinn
stjörnumerki, Hjarðmaðurinn
Hornmátið
Norma
Normae
Nei
  stjörnukort, stjörnumerki, Hornmátið
stjörnumerki, Hornmátið
Hrafninn
Corvus
Corvi
Að hluta
NGC 4038/4039
stjörnukort, stjörnumerki, Hrafninn
stjörnumerki, Hrafninn
Hringfarinn
Circinus
Circini
Nei
  stjörnukort, stjörnumerki, Hringfarinn
stjörnumerki, Hringfarinn
Hrúturinn
Aries
Arietis

  stjörnukort, stjörnumerki, Hrúturinn
stjörnumerki, Hrúturinn
Hvalurinn
Cetus
Ceti
Að hluta
M77
stjörnukort, stjörnumerki, Hvalurinn
stjörnumerki, Hvalurinn
Höfrungurinn
Delphinus
Delphini


stjörnukort, stjörnumerki, Höfrungurinn
stjörnumerki, Höfrungurinn
Höggormurinn
Serpens
Serpentis

M5, M16
stjörnukort, stjörnumerki, Höggormurinn
stjörnumerki, Höggormurinn
Indíáninn
Indus
Indi
Nei
  stjörnukort, stjörnumerki, Indíáninn
stjörnumerki, Indíáninn
Kamelljónið
Chamaeleon
Chamaeleontis
Nei
  stjörnukort, stjörnumerki, Kamelljónið
stjörnumerki, Kamelljónið
Kassíópeia
Cassiopeia
Cassiopeiae

M52, M103
stjörnukort, stjörnumerki, Kassíópeia
stjörnumerki, Kassíópeia
Kjölurinn
Carina
Carinae
Nei
Eta Carinae, Kjalarþokan
stjörnukort, stjörnumerki, Kjölurinn
stjörnumerki, Kjölurinn
Klukkan
Horologium
Horologii
Nei
NGC 1512
stjörnukort, stjörnumerki, Klukkan
stjörnumerki, Klukkan
Krabbinn
Cancer
Cancri

M44, M67
stjörnukort, stjörnumerki, Krabbinn
stjörnumerki, Krabbinn
Lagarormurinn
Hydrus
Hydri
Nei

stjörnukort, stjörnumerki, Lagarormurinn
stjörnumerki, Lagarormurinn
Litlaljón
Leo Minor
Leonis Minoris


stjörnukort, stjörnumerki, Litlaljón
stjörnumerki, Litlaljón
Litlibjörn
Ursa Minor
Ursa Minoris


stjörnukort, stjörnumerki, Litlibjörn
stjörnumerki, Litlibjörn
Litlihundur
Canis Minor
Canis Minoris


stjörnukort, stjörnumerki, Litlihundur
stjörnumerki, Litlihundur
Litlirefur
Vulpecula
Vulpeculae

M27, Herðatréð
stjörnukort, stjörnumerki, Litlirefur
stjörnumerki, Litlirefur
Ljónið
Leo
Leonis

M65, M66, M95, M96, M105, NGC 3628
stjörnukort, stjörnumerki, Ljónið
stjörnumerki, Ljónið
Mannfákurinn
Centaurus
Centauri
Nei
Omega Centauri, Centaurus A
stjörnukort, stjörnumerki, Mannfákurinn
stjörnumerki, Mannfákurinn
Málarinn
Pictor
Pictoris
Nei
NGC 1705
stjörnukort, stjörnumerki, Málarinn
stjörnumerki, Málarinn
Meitillinn
Caelum
Caeli
Nei
  stjörnukort, stjörnumerki, Meitillinn
stjörnumerki, Meitillinn
Meyjan (Mærin)
Virgo
Virginis
Að hluta
M49, M58, M59, M60, M61, M80, M84, M86, M87, M89, M104
stjörnukort, stjörnumerki, Meyjan
stjörnumerki, Meyjan
Myndhöggvarinn
Sculptor
Sculptoris
Nei
NGC 55, NGC 253, NGC 300
stjörnukort, stjörnumerki, Myndhöggvarinn
stjörnumerki, Myndhöggvarinn
Naðurvaldi
Ophiuchus
Ophiuchi
Að hluta
M9, M10, M12, M14, M19, M62, M107
stjörnukort, stjörnumerki, Naðurvaldi
stjörnumerki, Naðurvaldi
Nautið
Tauris
Tauri

M1, M45 (Sjöstirnið)
stjörnukort, stjörnumerki, Nautið
stjörnumerki, Nautið
Netið
Reticulum
Reticuli
Nei
NGC 1313
stjörnukort, stjörnumerki, Netið
stjörnumerki, Netið
Norðurkórónan
Corona Borealis
Coronae Borealis

  stjörnukort, stjörnumerki, Norðurkórónan
stjörnumerki, Norðurkórónan
Ofninn
Fornax
Fornacis
Nei

stjörnukort, stjörnumerki, Ofninn
stjörnumerki, Ofninn
Óríon
Orion
Orionis

M42, M43, M78, Riddaraþokan, Logaþokan
stjörnukort, stjörnumerki, Óríon
stjörnumerki, Óríon
Paradísarfuglinn
Apus
Apodi
Nei

stjörnukort, stjörnumerki, Paradísarfuglinn
stjörnumerki, Paradísarfuglinn
Páfuglinn
Pavo
Pavonis
Nei
NGC 6744, NGC 6752
stjörnukort, stjörnumerki, Páfuglinn
stjörnumerki, Páfuglinn
Pegasus
Pegasus
Pegasi

M15
stjörnukort, stjörnumerki, Pegasus
stjörnumerki, Pegasus
Perseifur
Perseus
Persei

M34, M76, NGC 869 og NGC 884
stjörnukort, stjörnumerki, Perseus
stjörnumerki, Perseus
Sefeus
Cepheus
Cephei

  stjörnukort, stjörnumerki, Sefeus
stjörnumerki, Sefeus
Seglið
Vela
Velorum
Nei
  stjörnukort, stjörnumerki, Seglið
stjörnumerki, Seglið
Sextantinn
Sextans
Sextanis

  stjörnukort, stjörnumerki, Sextantinn
stjörnumerki, Sextantinn
Sjónaukinn
Telescopium
Telescopii
Nei
  stjörnukort, stjörnumerki, Sjónaukinn
stjörnumerki, Sjónaukinn
Skjöldurinn
Scutum
Scuti

M11, M26
stjörnukort, stjörnumerki, Skjöldurinn
stjörnumerki, Skjöldurinn
Skuturinn
Puppis
Puppis
Að hluta
M46, M47, M93
stjörnukort, stjörnumerki, Skuturinn
stjörnumerki, Skuturinn
Smásjáin
Microscopium
Microscopii
Nei

stjörnukort, stjörnumerki, Smásjáin
stjörnumerki, Smásjáin
Sporðdrekinn
Scorpius
Scorpii
Að hluta
M4, M6, M7, M80
stjörnukort, stjörnumerki, Sporðdrekinn
stjörnumerki, Sporðdrekinn
Steingeitin
Capricornus
Capricorni
Að hluta
M30
stjörnukort, stjörnumerki, Steingeitin
stjörnumerki, Steingeitin
Stóribjörn
Ursa Major
Ursa Majori

M40, M81, M82, M97, M101, M108, M109
stjörnukort, stjörnumerki, Stóribjörn
stjörnumerki, Stóribjörn
Stórihundur
Canis Major
Canis Majoris
Að hluta
M41, VY Canis Majoris
stjörnukort, stjörnumerki, Stórihundur
stjörnumerki, Stórihundur
Suðurfiskurinn
Piscis Austrinus
Piscis Austrini
Nei
Fomalhaut
stjörnukort, stjörnumerki, Suðurfiskurinn
stjörnumerki, Suðurfiskurinn
Suðurkórónan
Corona Australis
Coronae Australis
Nei

stjörnukort, stjörnumerki, Suðurkórónan
stjörnumerki, Suðurkórónan
Suðurkrossinn
Crux
Crucis
Nei
Kolapokinn, Skartgripaskrínið
stjörnukort, stjörnumerki, Suðurkrossinn
stjörnumerki, Suðurkrossinn
Suðurþríhyrningurinn
Triangulum Australe
Trianguli Australis
Nei

stjörnukort, stjörnumerki, Suðurþríhyrningurinn
stjörnumerki, Suðurþríhyrningurinn
Svanurinn
Cygnus
Cygni

Slörþokan, Norður Ameríkuþokan
stjörnukort, stjörnumerki, Svanurinn
stjörnumerki, Svanurinn
Sverðfiskurinn
Dorado
Doradus
Nei
Stóra-Magellanskýið, Tarantúluþokan
stjörnukort, stjörnumerki, Sverðfiskurinn
stjörnumerki, Sverðfiskurinn
Tranan
Grus
Gruis
Nei
  tranan, stjörnumerki, grus, hegrinn
stjörnumerki, Hegrinn
Túkaninn/Piparfuglinn
Tucana
Tucanae
Nei
Litla Magellanskýið, 47 Tucanae
stjörnukort, stjörnumerki, Túkaninn
stjörnumerki, Túkaninn
Tvíburarnir
Gemini
Geminorum

M35, Eskimóaþokan
stjörnukort, stjörnumerki, Tvíburarnir
stjörnumerki, Tvíburarnir
Úlfurinn
Lupus
Lupi
Nei

stjörnukort, stjörnumerki, Úlfurinn
stjörnumerki, Úlfurinn
Vatnaskrímslið
Hydra
Hydrae
Að hluta
M48, M68, M83
stjörnukort, stjörnumerki, Vatnaskrímslið
stjörnumerki, Vatnaskrímslið
Vatnsberinn
Aquarius
Aquarii
Að hluta
M2, M72, M73, NGC 7009, NGC 7293
stjörnukort, stjörnumerki, Vatnsberinn
stjörnumerki, Vatnsberinn
Veiðihundarnir
Canes Venatici
Canum Venaticorum

M3, M51, M63, M94, M106
stjörnukort, stjörnumerki, Veiðihundarnir
stjörnumerki, Veiðihundarnir
Vogin
Libra
Librae
Að hluta

stjörnukort, stjörnumerki, Vogin
stjörnumerki, Vogin
Þríhyrningurinn
Triangulum
Trianguli

M33
stjörnukort, stjörnumerki, Þríhyrningurinn
stjörnumerki, Þríhyrningurinn
Ökumaðurinn
Auriga
Aurigae

M36, M37, M38
stjörnukort, stjörnumerki, Ökumaðurinn
stjörnumerki, Ökumaðurinn
Örin
Sagitta
Sagittae

M71
stjörnukort, stjörnumerki, Örin
stjörnumerki, Óríon
Örninn
Aquila
Aquilae

NGC 6751
stjörnukort, stjörnumerki, Örninn
stjörnumerki, Örninn

Stjörnumerki Ptólmæosar

Kládíus Ptólmæos, stjörnumerki
Sýn listamanns á fjölfræðingnum Kládíusi Ptólmæosi.

Þau merki sem við þekkjum í dag eru byggð á hópi 48 grískra persóna sem Kládíus Ptólmæos frá Alexandríu skráði í rit sitt Almagest um 150 e.Kr. Önnur menningarsamfélög höfðu sín merki eins og Forn-Egyptar og Kínverjar en Egyptar teiknuðu upp óvenjulegri merki á borð við kött og flóðhest svo dæmi séu tekin.

Rit Ptólmæosar inniheldur mikilvægustu stjörnumerkin sem sáust frá breiddargráðu Alexandríu, þar sem nú er Kaíró höfuðborg Egyptalands. Á meðal þeirra eru nokkur merki sem margir þekkja ef til vill, eins og til dæmis birnirnir tveir, Svanurinn, Herkúles, Vatnaskrímslið og Vatnsberinn ásamt merkjum dýrahringsins. Í riti hans er einnig að finna nokkur smærri, óskýrari merki á borð við Folann og Örina.

Sagt hefur verið að himininn sé eins og goðfræðileg myndabók. Á himninum er nefnilega að finna persónur úr mörgum frægum goðsögum, til dæmis flestar persónurnar úr sögunum af Perseifi – þar á meðal sjávarskrímsli eitt sem þó er betur þekkt í dag sem meinlaus hvalur. Á himninum er líka að finna veiðimanninn mikla Óríon sem sest niður fyrir sjóndeildarhringinn og mundar kylfu sína í átt til Nautsins. Þegar Óríon sest, rís drápsvera hans Sporðdrekinn og beinir eiturodda sínum að honum; Herkúles liggur í norðri ásamt fórnarlambi sínu Ljóninu.

Önnur stjörnumerki

Stjörnumerki Ptólmæosar þöktu þó ekki allan himininn og milli þeirra voru skörð sem óhjákvæmilega varð að fylla. Menn bættu þá við nýjum merkjum, stundum með því að breyta upprunalegu mörkunum. Á síðustu árum 16. aldar bjuggu tveir hollenskir sæfarar, Pieter Drikszoon Keyser (1540-96) og Fredrick de Houtman (1571-1627), til tólf ný stjörnumerki á suðurhimininn, þar sem grísku stjörnufræðingarnir sáu ekki til. Hollenski kortagerðamaðurinn Petrus Plancius (1552-1622) bætti þremur merkjum við þau sem Grikkir þekktu og aðskildi hann stjörnurnar í Suðurkrossinum og Mannfáknum. Enn síðar varð að skipta suðurhimninum í fleiri merki og sum heitin bera óneitanlega keim af nútímanum; þar er til dæmis að finna Sjónaukann, Smásjána og Loftdæluna. Á miðri 18. öld kláruðu menn svo að kortleggja suðurhimininn þegar franski stjörnufræðingurinn Nicolas de Lacaille (1713-63) bjó til fjórtán ný merki og skipti Argó Navis í þrjú merki; Kjölinn, Skutinn og Seglið en upprunalega merkið þótti ekki skynsamlegt.

Hinn merki þýski stjörnufræðingur Jóhannes Hevelíus (1611-87) lauk svo við að kortleggja norðurhimininn - eins og við þekkjum hann í dag - árið 1687. Hevelíus kynnti nokkrar nýjar myndir en af þeim þekkjast sjö enn í dag. Mörk Alþjóðasambands stjarnfræðinga voru svo samþykkt árið 1930 með örlitlum tilbreytingum.

Í gegnum aldirnar hefur oft verið stungið upp á breytingum á stjörnumerkjunum. Árið 1688 stakk til að mynda maður að nafni Erhard Weigel upp á því að stjörnumerkjunum skyldi breytt. Þau áttu að tákna skjaldarmerki hvers lands í Evrópu til heiðurs konungsfjölskyldunum. Þannig átti til dæmis Ljón og Einhyrningur að tákna England. Stjörnumerkin væru þá miklu flóknari en þau eru nú og sem betur fer var hlaupið frá þessari slæmu hugmynd.

Pólhverf stjörnumerki

Af stjörnumerkjunum 88 sjást 53 merki að öllu leyti eða að hluta frá Íslandi. Nokkur merkjanna eru pólhverf frá Íslandi séð, eins og Stóribjörn, Kassíópeia og fleiri, en með því er átt við að þau rísa hvorki né setjast á himinhvelfingunni frá okkur séð, heldur hringsóla um himinpólinn.

Þeir sem hafa varið stundarkorni í stjörnuskoðun utandyra hafa margir tekið eftir því að stjörnumerkin virðast færast. Ef við gætum fylgst með næturhimninum í heilan sólarhring sæjum við himinhvelfinguna snúast einn hring um Pólstjörnuna. Að sjálfsögðu er það ekki himininn sem snýst heldur snýst jörðin einn hring um sjálfa sig á hverjum sólarhring.

Snúningur jarðar um sólu hefur einnig áhrif. Okkur virðist sem sólin flakki á milli stjörnumerkja dýrahringsins en í raun er það jörðin sem snýst heilan hring umhverfis sólina á einu ári. Á hringferðinni sjást síðan ólík mynstur stjarna á bak við sólina (stjörnumerki dýrahringsins). Ferðalag jarðarinnar umhverfis sólina veldur því einnig að stjörnumerkin eru alltaf á nýjum stað á himninum eftir því sem líður á veturinn. Til að mynda rís Óríon upp á himininn síðla nætur á haustin en sést strax eftir að myrkur skellur á í febrúar og mars.

Að læra á stjörnuhimininn

Það tekur áhugamenn mjög mislangan tíma að átta sig á næturhimninum, hvernig hann hreyfist og hvar á að leita að áhugaverðum fyrirbærum til skoðunar. Til þess að læra að þekkja stjörnumerkin getur verið gott að fara að heiman án sjónauka (nema e.t.v. handsjónauka) og finna sér góðan stað þar sem truflun vegna götuljósa er í lágmarki. Stjörnukort, vasaljós (helst með rauðu ljósi til þess að skemma sem minnst aðlögun augnanna að náttmyrkrinu), hlý föt og heitt kakó er allt sem þarf að hafa með í farteskinu þegar haldið er á vit stjörnumerkjanna. Þessi grein er hugsuð sem hjálpargagn fyrir stjörnuáhugamenn sem vilja læra að þekkja stjörnumerkin. Það er þó ekki svo að maður læri að þekkja öll merkin á einu kvöldi (frá Íslandi sjást yfir 50 stjörnumerki!) heldur er gott að miða við að læra eitt stjörnumerki á kvöldi og rifja í leiðinni upp kunnuleg stjörnumerki sem sjást á himninum. Áður en langt um líður er staðsetning tíu til tuttugu stjörnumerkja komin á hreint og þá er auðveldara að finna ný stjörnumerki og fyrirbæri út frá þeim sem komin eru á hreint í kollinum.

Til þess að hægt sé að læra stjörnumerkin er nauðsynlegt að verða sér úti um stjörnukort eða hringskífu með stjörnumerkjunum. Í Íslenskum stjörnuatlasi eru kort sem sýna stjörnumerkin sem sjást frá Íslandi og bókinni fylgir einnig hringskífa sem miðast við Ísland og er hentugt að taka með sér í stjörnuskoðun. Stjörnukort er að finna í sumum landabréfabókum sem gefnar hafa verið út fyrir grunnskóla og við á Stjörnufræðivefnum gefum út nýtt stjörnukort í prentvænni útgáfu í hverjum mánuði. Ennfremur mælum við með Starry Night hugbúnaðinum fyrir þá sem vilja læra merkin og geta prentað út eigin stjörnukort.

Heimildir:

  1. Kaler, James. 2002. The Ever-Changing Sky: A Guide to the Celestial Sphere. Cambridge University Press, Massachusetts.

  2. Sagan, Carl. 1980. Cosmos. Random House, New York.

  3. Snævarr Guðmundsson. 2004. Íslenskur stjörnuatlas. Mál og menning, Reykjavík.

  4. Vefsíða um samstirni á Wikipediu.

  5. Vefsíða um dýrahringinn á Wikipediu

  6. Ensk-íslensk orðaskrá úr stjörnufræði á vef Almanaks Háskóla Íslands

Hvernig vitna skal í þessa grein

  • Sverrir Guðmundsson, Sævar Helgi Bragason og Tryggvi Kristmar Tryggvason (2010). Stjörnumerkin. Stjörnufræðivefurinn. http://www.stjornuskodun.is/stjornuskodun/stjornumerkin (sótt: DAGSETNING).


 

Fleygar setningar

- Carl Sagan

„Himininn kallar á okkur. Ef við tortímum okkur ekki sjálf munum við dag einn ferðast til stjarnanna.“
 




Póstlisti