Geimverur komnar í allar bókabúðir

Bók fyrir allt vísindaáhugafólk um leitina að lífi í geimnum

Sævar Helgi Bragason 02. jan. 2018 Fréttir

Bókin Geimverur - Leitin að lífi í geimnum eftir Sævar Helga Bragason er komin í allar bókaverslanir og víðar.

  • Geimverurkapa

Geimverur – Leitin að lífi í geimnum fjallar um eina stærstu spurningu vísindanna: Erum við ein í alheiminum eða er líf á öðrum hnöttum? Hvers vegna höfum við ekki enn sannað tilvist geimvera? Hafa þær kannski nú þegar heimsótt jarðarbúa? Hvernig gætu geimverur litið út? Höfum við reynt að senda skilaboð til þeirra?

Í bókinni er sagt frá plánetum og tunglum í sólkerfinu okkar þar sem líf gæti hugsanlega leynst eða þrifist og þeirri miklu byltingu sem orðið hefur á undanförnum árum eftir að lífvænlegar fjarreikistjörnur komu í leitirnar. Við færumst sífellt nær því að finna svörin við stóru spurningunum.

Kaupa á Forlagið.is

828x315_facebookhaus_Geimverur2