Meitillinn

  • stjörnukort, stjörnumerki, Meitillinn
    Kort af stjörnumerkinu Meitlinum
Helstu upplýsingar
Latneskt heiti:
Caelum
Bjartasta stjarna: α Caeli
Bayer / Flamsteed stjörnur:
8
Stjörnur bjartari +3,00:
0
Nálægasta stjarna:
RR Cae
(26,3 ljósár)
Messier fyrirbæri:
0
Loftsteinadrífur:
Engar
Sést frá Íslandi:
Nei

Uppruni

Meitillinn er eitt þeirra stjörnumerkja sem franski stjörnufræðingurinn Nicolas Louis de Lacaille bjó til eftir dvöl sína á Góðrarvonarhöfða í Suður Afríku, þar sem hann var við stjörnuathuganir árin 1751-52. Merkið birtist fyrst á korti Lacailles af suðurhimninum sem kom út árið 1756. Þá kallaði hann það les Burins en í annarri útgáfu kortsins sem kom út árið 1763 hafði nafinu verið breytt í Caelum Scalptorium, Meitil leturgrafarans. Síðar var það stytt í Caelum eða Meitilinn.

Engar goðsagnir tengjast merkinu.

Stjörnur

Allar stjörnur Meitilsins eru daufar (birtustig 4 eða daufari). Birtustig björtustu stjörnunnar, Alfa Caeli, er +4,45.

  • α Caeli er tvístirni í um 66 ljósára fjarlægð frá jörðinni. Stærri og bjartari stjarna kerfisins er í litrófsflokki F (F2V) og er 1,48 sinnum massameiri en sólin okkar og 1,3 sinnum breiðari. Hún er rúmlega þúsund gráðum heitari en sólin okkar. Smærri og daufari stjarnan er rauður dvergur (M0.5V), aðeins 30% af massa sólar og töluvert kaldari (um 3.500°C).

  • β Caeli er í um 90 ljósára fjarlægð frá jörðinni (birtustig +5,04). Hún er í litrófsflokki F (F2V) og er rúmlega sex sinnum bjartari en sólin okkar. Hún er þriðja bjartasta stjarna Meitilsins.

  • γ Caeli er notað yfir tvö tvístirnakerfi, Gamma-1 Caeli og Gamma-2 Caeli. Gamma-1 Caeli er kerfi appelsínuguls risa af K-gerð og daufari förunautar af áttunda birtustigi í 185 ljósára fjarlægð frá jörðinni. Gamma-2 Caeli er líka tvístirni í um 334 ljósára fjarlægð frá jörðinni. Kerfið samanstendur af gulhvítum risa af F-gerð og daufari förunauti sem er líka af F-gerð. Aðeins 0,22 gráður skilja á milli beggja tvístirnakerfa á himninum.

Djúpfyrirbæri

stjörnumerki, stjörnuhiminn, Meitillinn
Stjörnumerkið Meitillinn og nágrenni. Mynd úr Stellarium hugbúnaðinum

Í Meitlinum eru nokkrar daufar vetrarbrautir úr NGC skránni, þar á meðal:

  • NGC 1679 er þyrilvetrarbraut um tvær gráður suður af Zeta Caeli.

  • NGC 1571 og IC 2106 eru tvær aðrar vetrarbrautir í merkinu.

Stjörnukort

Stjörnukort af Meitlinum í prentvænni útgáfu má nálgast hér.

Heimildir

  1. Ian Ridpath's Star Tales - Caelum the Chisel

  2. http://en.wikipedia.org/wiki/Caelum