Krakkafréttir

Draugabæir í geimnum

  • dimmar vetrarbrautir, dulstirni
    Þessi djúpmynd sýnir svæði á himninum í kringum dulstirnið HE 0109-3518. Dulstirnið er við miðja mynd. Orkurík geislun þess veldur því að dimmu vetrarbrautirnar glóa sem hjálpar stjörnufræðingar að skilja þetta snemmabúna stig í myndun vetrarbrauta. Í þessari mynd hefur mælingum frá Very Large Telescope, sem var ætlað að greina flúrljómun dimmu vetrarbrautanna af völdum dulstirnisins, verið blandað saman við litagögn frá Digitized Sky Survey 2. Mynd: ESO, Digitized Sky Survey 2 and S. Cantalupo (UCSC)

Vetrarbrautir eru eins og stórar borgir í geimnum. Nú hafa stjörnufræðingar hins vegar fundið tólf vetrarbrautir sem líkjast meira draugabæjum en borgum, því engar stjörnur búa í þeim!

Þessi smáu fyrirbæri eru kallaðar „dimmar vetrarbrautir“ því í þeim eru engar stjörnur sem láta þær skína skært. Stjörnufræðinga hafði lengi grunað að dimma vetrarbrautir væru til því þær leika mikilvægt hlutverk í vexti og þróun vetrarbrauta í sögu alheimsins. En þangað til þessi nýja uppgötvun var gerð hafði enginn séð svona vetrarbraut.

Dimmar vetrarbrautir eru órafjarlægar. Þær eru taldar mikilvægar byggingareiningar sem hjálpuðu til við myndun stóru stjörnuvetrarbrautanna sem við sjáum í dag, eins og vetrarbrautina okkar. Við getum enn komið auga þessar byggingareiningar, jafnvel þótt þær hafi fyrir löngu verið notaðar í stórar vetrarbrautir. Ástæðan er sú að þegar við horfum langt út í geiminn, horfum við líka aftur í fortíðina! (Smelltu hér til að læra meira um hvernig stjörnufræðingar geta horft aftur í tímann.)

En hvernig geta stjörnufræðingar leitað að dimmri vetrarbraut? (Hugsaðu þér ef þú leitaðir að kerti í dimmu herbergi — um leið og slökkt er á loganum er erfitt að koma auga á það) „Lýstu einfaldlega björtu ljósi á þær“ útskýrir Simon Lilly, einn stjörnufræðinganna sem gerði nýju uppgötvunina. Stjörnufræðingarnir leituðu sem sagt að dimmu vetrarbrautum í kringum mjög bjartar vetrarbrautir sem kallast „dulstirni“ og eru líka órafjarlægar. „Ljósið frá dulstirninu lýsir upp dimmu vetrarbrautirnar“ segir Simon.

Fróðleg staðreynd: Þessar dimmu vetrarbrautir eru kannski litlar í samanburði við vetrarbrautir sem við sjáum í dag en þær innihalda samt um 1 milljarð sinnum meira gas en sólin!

Þessi frétt er unnin í góðu samstarfi við UNAWE og Space Scoop unawe1234

UNAWE, Universe Awareness for Young Children Space Scoop