Nýtt giljadrag í Terra Sirenum

24. mars 2014

  • Giladrag í Terra Sirenum
    Giladrag í Terra Sirenum

Giljadrög finnast við miðlægar breiddargráður á Mars, sér í lagi á hálendinu á suðurhveli. Venjulega hafa þessar jarðmyndanir hvilftir efst og farveg sem liggur niður frá henni í skriðusvuntu, þar sem efnið sem flust hefur úr hvilftinni er að finna.

Á myndum HiRISE hafa fundist mörg dæmi um virk giljadrög, sennilega af völdum árstíðabundins koldíoxíðhríms (þurrís). Undanfarin ár hefur eitt helsta viðfangsefni HiRISE verið að taka myndir af giljadrögum í leit að breytingum á þeim, þar sem leitast er eftir að skilja yfirborðsferlin sem eru virk í dag.

Svæðið sem hér sést hefur áður verið kannað. Með því að bera saman nýjar og eldri myndir sést að nýr og nokkuð stór farvegur hefur myndast einhvern tímann milli nóvember 2010 og maí 2013. Efni sem streymir niður úr hvilftinni hefur brotið sér leið frá gamla farveginum, sorfið nýjan og myndað skriðusvuntu út frá honum.

Myndir eins og þessi sýna að giljadrög verða til í dag. Þótt við getum ekki fundið út á hvaða árstíma þessi atburður varð, sýna myndir frá HiRISE oftar en ekki að virknin er venjulega á veturna, þegar mjög ólíklegt er að fljótandi vatn komi við sögu. Þrátt fyrir líkindin við vatnssorfin gil á Jörðinni er líklegt að koldíoxíð leiki aðalhlutverkið í myndun margra giljadraga á Mars.

Mynd: NASA/JPL/University of Arizona

Ummæli