Stjörnuborg sem aldrei sefur

31. janúar 2011

  • IC 391, þyrilvetrarbraut, Gíraffinn
    Þyrilvetrarbrautin IC 391 í Gíraffanum. Mynd: ESA/Hubble og NASA

Advanced Camera for Surveys myndavél Hubble geimsjónaukans náði þessari mynd af augnabliki í ævi þyrilvetrarbrautarinnar IC 391. Massamiklar stjörnuborgir sem þessi sýnast kyrrar og óbreytanlegar en í raun eru stjörnurnar í henni á stanslausri ferð og stöðugt í þróun. Nýjar stjörnur eru sífellt að myndast á meðan hinar eldri deyja – oft á mikilfenglegan hátt sem sprengistjörnur sem sjá má frá jörðu.

Þann 3. janúar 2001 fundu stjörnufræðingar við Stjörnustöðina í Peking eina slíka sprengistjörnu í IC 391 og fékk hún nafnið SN 2001B [1]. Um var að ræða sprengistjörnu af gerð Ib sem á sér stað þegar massamikil stjarna klárar eldsneyti sitt, fellur saman og sendir við það frá sér gríðarmikla geislun og öfluga höbbylgju. Með hjálp Hubblessjónaukans hefur skilningur okkar á sprengistjörnum aukist til mikilla muna undanfarin ár. Hubble hefur líka gert viðamiklar rannsóknir á sprengistjörnunni 1987A (heic0704), björtustu sprengistjörnu sem sést hefur frá jörðinni í 400 ár.

IC 391 er í um 80 milljón ljósára fjarlægð í stjörnumerkinu Gíraffanum, hátt í norðri á himinhvelfingunni. Breski áhugamaðurinn William Denning uppgötvaði vetrarbrautina á seinni hluta átjándu aldar og lýsir fyrirbærinu sem mjög daufu, smáu og kringlóttu.

Myndin var sett saman úr ljósmyndum sem teknar voru með Advanced Camera for Surveys á Hubble geimsjónaukanum. Myndir teknar í gegnum bláa síu voru litaðar bláar, grænar í gegnum græna síu og rauðar í gegnum nær-innrauða síu. Lýsingartímar í gegnum hverja síu voru 800 sekúndur, 700 sekúndur og 700 sekúndur. Myndin þekur 2,1 x 1,4 bogamínútur af himinhvelfingunni.

Mynd vikunnar kemur frá ESA/Hubble & NASA

Skýringar

[1] Sprengistjörnur eru nefndar eftir ártali og bókstaf eftir því hvenær sprengingin varð á árinu. SN 2001B gefur því til kynna að þetta sé önnur sprengistjarnan sem sást frá jörðinni árið 2001.

Um fyrirbærið

  • Nafn: IC 391

  • Tegund: Þyrilþoka

  • Fjarlægð: 80 milljón ljósár

Myndir

Ummæli