Messier 38

Lausþyrping í Ökumanninum

  • Messier 38, lausþyrping, Ökumaðurinn
    Lausþyrpingin Messier 38 í Ökumanninum. Mynd: NOAO/AURA/NSF
Helstu upplýsingar
Tegund: Lausþyrping
Stjörnulengd:
5klst 28mín 46s
Stjörnubreidd:
+35° 51′ 18"
Fjarlægð:
4.200 ljósár
Sýndarbirtustig:
+7,4
Stjörnumerki: Ökumaðurinn
Önnur skráarnöfn:
NGC 1912

Ítalski stjörnufræðingurinn Giovanni Batista Hodierna uppgötvaði þyrpinguna fyrir árið 1654. Uppgötvun Hodiernas varð mönnum reyndar ekki ljós fyrr en árið 1984. Þann 25. september árið 1764 rataði hún í skrá franska stjörnufræðingsins Charles Messier yfir þokukennd fyrirbæri á stjörnuhimninum sem líktust halastjörnum.

Messier 38 er í um 4.200 ljósára fjarlægð. Hún er um 25 ljósár í þvermál, svipað og nágranninn Messier 37. Þyrpingin er líklega um 220 milljón ára gömul. Bjartasta stjarnan er gulur risi (litrófsgerð G0) með birtustig +7,9. Til samanburðar væri birtustig sólar, séð úr jafnmikilli fjarlægð, aðeins +15,3.

Á himninum

Messier 38 er alla jafn hátt á íslenska stjörnuhimninum. Þyrpingin er of dauf til að sjást með berum augum svo nota þarf stjörnukort af Ökumanninum til að finna hana. Hún er aðeins 2,5 gráður norðvestur af M36.

Messier 38 er daufust lausþyrpinganna þriggja í Ökumanninum en mjög falleg að sjá með stjörnusjónauka. Best er að nota litla stækkun til að skoða hana því hún er nokkuð víðfeðm eins og Messier 37. Björtustu stjörnunrar mynda mynstur sem líkist gríska bókstafnum pí.

Þyrpingin er kjörið viðfangsefni byrjenda í stjörnuskoðun og vitaskuld lengra kominna líka.

Tengt efni

Heimildir

Hvernig vitna skal í þessa grein

  • Sævar Helgi Bragason (2012). Messier 38. Stjörnufræðivefurinn. http://www.stjornuskodun.is/stjornuskodun/djupfyrirbaeri/messierskrain/messier-38 (sótt: DAGSETNING).