Upplýsingar um stjörnuskífu fyrir haust og vor

  • stjörnuskífa
    Á stjörnuskífunni eru kort á báðum hliðum (fyrir haust og vor). Raunstærð er 19,5x19,5 cm.

Upplýsingar um stjörnuhiminn að hausti

Stjörnukortið fyrir hausthimininn byggir á Stjörnukorti mánaðarins fyrir október. Með því fylgir leiðarvísir með upplýsingum um helstu stjörnur og fyrirbæri sem sjást á haustin.

Upplýsingar um stjörnuhiminn að vori

Stjörnukortið fyrir hausthimininn byggir á Stjörnukorti mánaðarins fyrir febrúar. Með því fylgir leiðarvísir með upplýsingum um helstu stjörnur og fyrirbæri sem sjást á vorin.

Hvar get ég nálgast svona stjörnukort?

Þegar þetta er skrifað (í nóvember 2011) þá eiga Stjörnuskoðunarfélagið og Stjörnufræðivefurinn yfir 2000 stjörnukort afgangs sem dreift verður á viðburðum á meðan birgðir endast s.s. í sólskoðun í miðbæ Reykjavíkur á 17. júní eða á Menningarnótt, á Vísindavöku Rannís og öðrum opinberum viðburðum. Þátttakendur á stjörnufræðinámskeiðum og gestir á félagsfundum Stjörnuskoðunarfélagsins (sem eru öllum opnir) munu einnig geta fengið kort.

Hvers vegna eru reikistjörnurnar ekki merktar inn á kortið?

Reikistjörnurnar eru ólíkar fastastjörnunum að því leyti að þær reika á milli þeirra stjörnumerkja sem sólin gengur um (stjörnumerkin í dýrahringnum). Til þess að stjörnukortið endist næstu árin þá eru þær ekki merktar inn á kortið. Hægt er að fá upplýsingar um reikistjörnurnar og tunglið á Stjörnukorti mánaðarins. Einnig er hægt að styðjast við forritin Stellarium eða AstroViewer en bæði eru þau ókeypis og á íslensku.

Hvernig virka áttirnar á jaðri stjörnukortanna?

Áttirnar virka þannig að þegar horft er í suður á að snúa kortinu þannig að suður sé neðst á stjörnuskífunni o.s.frv. Áttirnar eru ólíkar því sem við þekkjum á landakorti en þegar við höldum stjörnukortinu uppréttu fyrir framan okkur þá passa áttirnar við himininn!

Hvaða fyrirbæri hafið þið sett sérstaklega inn á kortin?

Allar stjörnuþyrpingar og önnur fyrirbæri sem við höfum sett sem við merkjum inn á kortið sjást með berum augum (að Herðatrésþyrpingunni undanskilinni sem sést í litlum stjörnusjónauka).