Sólmyrkvi 2015

Sólmyrkvagleraugu

  • Sólmyrkvagleraugu eru ein öruggasta leiðin til að fylgjast með sólmyrkvum
    Sólmyrkvagleraugu eru ein öruggasta leiðin til að fylgjast með sólmyrkvum

Í tilefni sólmyrkvans færa Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness, Stjörnufræðivefurinn og Hótel Rangá, öllum grunnskólanemendum á Íslandi sólmyrkvagleraugu að gjöf svo hver nemandi og kennari geti fylgst með myrkvanum. Þetta verkefni er einstakt á heimsvísu.

Að horfa á sólina án viðeigandi hlífðarbúnaðar getur valdið varanlegum augnskaða og blindu í verstu tilvikum.

Sölustaðir

  • Verslanir Pennans/Eymundsson um land allt (gleraugun ættu að skila sér í allar verslanir um helgina eða strax eftir helgi)

  • Tölvun - Vestmannaeyjum

  • The Viking - Akureyri

  • Hótel Bláfell - Breiðdalsvík (berst í kaupfélagið eftir helgi)

  • Húsavík Cape Hotel - Húsavík

  • Hótel Rangá

Af hverju sólmyrkvagleraugu?

Sólmyrkvagleraugun eru úr hágæða silfurhúðaðri sólarfilmu sem síar burt skaðlega innrauða geisla og útfjólubátt ljós. Þau hleypa aðeins hundrað þúsunda hluta af sýnilega sólarljósinu í gegn svo öruggt er að skoða sólina með berum augum. Venjuleg sólgleraugu duga ekki til því þau hleypa of miklu ljósi í gegn (sólin er alltof björt) og einnig skaðlegum geislum.

Alls ekki nota 3D gleraugu eða venjuleg sólgleraugu!!

Gleraugun eru framleidd í Þýskalandi samkvæmt ströngustu öryggisstöðlum. Filmurnar í gleraugunum eru fjölhúðaðar og því rispuþolnar en mikilvægt er að fara vel með þær. Gleraugun má alls ekki nota með öðrum sjóntækjum, hvorki handsjónaukum né stjörnusjónaukum.

Á bakhlið gleraugnanna eru notkunarleiðbeiningar á íslensku og ensku. Gleraugun eru ekki einnota og má nota hvenær sem er til að skoða stóra sólbletti og aðra sólmyrkva. Á næstu árum verða nokkrir deildarmyrkvar þar sem gleraugun munu koma að góðu gagni. Geymið því sólmyrkvagleraugun.

Sólmyrkvagleraugu frá Baader með íslenskum leiðbeiningum


- Sævar Helgi Bragason