NGC 1553

  • Linsulaga vetrarbraut, NGC 1553
    Linsulaga vetrarbrautin NGC 1553 í stjörnumerkinu Sverðfisknum. Mynd: NASA/ESA
Helstu upplýsingar
Tegund: Linsulaga vetrarbraut
Stjörnulengd:
04klst 16mín 10,5s
Stjörnubreidd:
-55° 46′ 49"
Fjarlægð:
79 milljón ljósár
Sýndarbirtustig:
+10,3
Stjörnumerki: Sverðfiskurinn
Önnur skráarnöfn:
ESO 157-17

Enski stjörnufræðingurinn John Herschel uppgötvaði vetrarbrautina þann 5. desember árið 1834.

NGC 1553 er næst bjartasta vetrarbrautin í hópi vetrarbrauta sem kenndur er við stjörnumerkið Sverðfiskinn.

Mælingar Hubble geimsjónauka NASA og ESA benda til að í kringum NGC 1553 séu um og yfir 600 kúluþyrpingar.

Heimildir

  1. http://en.wikipedia.org/wiki/NGC_1553

  2. Courtney Seligman - NGC 1553

  3. SIMBAD Astronomical Database - NGC 1553