Krakkafréttir

Heit uppgötvun á köldum reikistjörnum

  • Fomalhaut, stjarna, rykhringur, reikistjörnur
    Þessi nýja mynd sem tekin var með Atacama Large Millimeter/submillimeter Array (ALMA) sýnir rykhring sem umlykur björtu stjörnuna Fomalhaut. Bláa myndin í bakgrunni er eldri mynd sem tekin var með Hubble geimsjónauka NASA og ESA. Nýja myndin frá ALMA hefur veitt stjörnufræðingum mikilvægar upplýsingar um nálægt sólkerfi og myndun og þróun slíkra kerfa. Tekið skal fram að ALMA hefur hingað til aðeins rannsakað hluta hringsins. Mynd: ALMA (ESO/NAOJ/NRAO); NASA/ESA Hubble Space Telescope

Glænýr sjónauki sem er enn í smíðum og kallast ALMA, hefur þegar gert sína fyrstu uppgötvun! Hann hefur fundið tvær reikistjörnur á braut um fjarlæga stjörnu og eru þær meðal köldustu reikistjarna sem fundist hafa.

ALMA lítur hreint ekki út eins og dæmigerður stjörnusjónauki. Fullbúinn samanstendur hann af hópi 66 loftneta sem minna einna helst á gervihnattadiska sem stundum eru sett á hús til að taka á móti sjónvarpsútsendingum. En loftnet ALMA eru um það bil 12 sinnum stærri og ekki hugsuð til að fylgjast með beinum sjónvarpsútsendingum heldur til að taka á móti sérstakri tegund af ljósgeislum sem kallast hálfsmillímetrabylgjur.

Slíkar bylgjur gera stjörnufræðingum kleift að rannsaka helkalt efni í geimnum, til dæmis ryk. Og það er nákvæmlega það sem stjörnufræðingarnir gerðu! Reikistjörnurnar fundust vegna þess að aðdráttarafl þeirra hefur mótað ský úr köldu ryki í risavaxinn hring sem umlykur stjörnuna.

Þegar stjörnufræðingarnir fundu reikistjörnurnar var aðeins fjórðungur af 66 loftnetum ALMA tilbúin til notkunar. „Þótt ALMA sé enn í smíðum er hún þegar öflugasti sjónauki sinnar tegundar í heiminum“ sagði Bill Dent, einn af stjörnufræðingunum sem gerði uppgötvunina.

Þessi frétt er unnin í góðu samstarfi við UNAWE og Space Scoop unawe1220

UNAWE, Universe Awareness for Young Children Space Scoop