Krakkafréttir

Ævintýri í geimnum

  • Messier 78, APEX
    Þessi mynd af svæðinu í kringum endurskinsþokuna Messier 78, sem er skammt norður af Sverðþokunni í Óríon, sýnir ský úr geimryki sem þræða sig í gegnum þokuna líkt og perlufesti. Hálfsmillímetramælingarnar voru gerðar með Atacama Pathfinder Experiment (APEX) sjónaukanum og sýna varmageislun rykagnanna og hjálpa stjörnufræðingum að sjá hvar nýjar stjörnur eru að myndast. Mælingar APEX eru appelsíngular og hafa verið lagðar ofan á mynd af svæðinu í sýnilegu ljósi. Mynd: ESO/APEX (MPIfR/ESO/OSO)/T. Stanke et al./Igor Chekalin/Digitized Sky Survey 2

„Spegill, spegill herm þú mér, hver í heimi fegurst er?“ spurði stjarnan þegar hún sá ljósið sitt speglast af rykkornum í geimnum. Það kom henni á óvart þegar hún heyrði svarið: „Þessi rykský!“

Stjörnur geta vitaskuld ekki talað en þessi rykský eru fallegri en stjörnurnar sem lýsa þau upp. Þau eru kölluð endurskinsþokur vegna þess að þær endurvarpa ljósinu frá nálægum stjörnum.

Á myndinni er endurspeglaða ljósið blátt og hvítt. Rykið gefur líka frá sér eigið ljós sem sýnt er appelsínugult á myndinni. Appelsínugulu svæðin sýna hvar rykið hefur hlaupið í kekki.

Augu okkar geta ekki greint jafn orkulítið ljós og það sem frá rykinu berst en sérstakur sjónauki sem heitir APEX getur það. Án APEX sæju stjörnufræðingar ekkert þar sem þessir rykkekkir eru — einungis dimm ský sem birgja okkur sýn á hvaðeina sem á bakvið liggur.

Mjög mikilvægt er fyrir stjörnufræðinga að geta séð svona svæði, því í þessum gas- og rykskýjum fæðast nýjar stjörnur.

Skemmtileg staðreynd: APEX sjónaukinn er í eyðimörk í Suður Ameríku sem er 5.100 metra yfir sjávarmáli!

Þessi frétt er unnin í góðu samstarfi við UNAWE og Space Scoop unawe1225

UNAWE, Universe Awareness for Young Children Space Scoop