Nix

Fylgitungl Plútós

  • Nix, fylgitungl Plútós. Mynd: NASA/JHUAPL/SRI
    Nix, fylgitungl Plútós. Mynd: NASA/JHUAPL/SRI
Tölulegar upplýsingar
Uppgötvað af:
Hubble geimsjónaukinn
Uppgötvuð árið:
16. júní 2005
Meðalfjarlægð frá Plútó: 48.694 km
Umferðartími um Plútó: 24,9 jarðdagar
Snúningstími: Óreglulegur
Stærð:
54 km x 41 km x 36 km
Massi:
(4,5 ± 4,0 ) x 1018 kg
Meðalhitastig yfirborðs:
-230°C
Endurskinshlutfall:
0,36-0,39
Sýndarbirtustig:
+23,5

Á myndum geimfarsins sést að Nix er ílangt í laginu, 54 x 41 x 36 km að stærð. Stærsti gígurinn sem sást á myndunum er 15 km breiður.

1. Uppgötvun

Nix fannst, ásamt Hýdra, á myndum sem teknar voru með Hubble geimsjónauka NASA og ESA 15. maí og 18. maí 2005 en tilkynnt var um uppgötvunina 31. október sama ár. Tunglin sáust einnig á endurunnum myndum af Plútó frá árinu 2002. Tunglin fengu þá til bráðabirgða heitin S/2005 P 1 (Hýdra) og S/2005 P 2 (Nix).

1.1 Nafn

Nix er nefnt eftir móður Karons (ferjumanns Hadesar eða Plútós) sem var jafnframt gyðja myrkurs og nætur hjá Grikkjum. Nöfnin voru kynnt opinberlega hinn 21. júní 2006. Upphaflega átti Nix að vera stafsett Nyx, eins og upprunalegt nafn gyðjunnar er, en fallið var frá því til að forðast ruglingi við smástirnið 3908 Nyx. Nöfnin Nix og Hýdra eru ennfremur vísun í New Horizons sem hefur sömu skammstöfun.

2. Braut og snúningur

Plútó, Karon, Nix, Hýdra, Kerberos, Styx
Plútó og fylgitungl hans á mynd Hubble geimsjónaukans.

Nix er á því sem næst hringlaga braut um Plútó í sama fleti og Karon, sem er miðbaugsflötur Plútós, á tæpum 25 dögum. Nix er í 3:2 brautarherma með Hýdra og 9:11 herma með Styx. Það þýðir að fyrir hverjar þrát ferðir sem Nix fer í kringum Plútó fer Hýdra tvær og í hvert sinn sem Styx fer ellefu sinnum um Plútó fer Nix níu hringi.

Snúningur Nix um eigin möndul er óreglulegur. Það þýðir að möndulhallinn breytist og engir tveir dagar eru jafn langir. Þegar New Horizons flaug framhjá Nix snerist tunglið einu sinni um möndul sinn á tæplega 44 klukkustundum. Snúningstíminn hafði aukist um 10% frá því að Nix fannst.

3. Tengt efni

Tenglar

Heimildir

  1. NASA's Hubble Reaveals Possible New Moons Around Pluto. Hubblesite.org
  2. Hubble Confirms New Moons of Pluto. Hubblesite.org
  3. Hubble's Lates Look at Pluto's Moons Supports a Common Birth. Hubblesite.org
  4. Simon Porter. Pluto's Small Moons Nix and Hydra. NASA.gov
  5. Hubble fylgist með óreglulegum dansi tungla Plútós. Stjörnufræði.is

- Sævar Helgi Bragason