Febrúar 2024

  • Hvað er á himni í febrúar?
    Hvað er á himni í febrúar?

Í febrúar 2024 skín Júpíter skærast á himni og á fallegt stefnumót við tunglið að kvöldi 14. febrúar.

HELST Á HIMNI Í FEBRÚAR 2024

1. febrúar - Morgun: Tunglið og Spíka í Meyjunni þétt saman á morgunhimninum:

14. febrúar - Kvöld: Falleg samstaða vaxandi tungls og Júpíter í suðvestri.

16. febrúar - Kvöld: Hálft vaxandi tungl skammt frá Sjöstirninu í Nautinu. Skoðaðu með handsjónauka.

20. febrúar - Kvöld: Tunglið við Pollux í Tvíburunum

23. febrúar - Kvöld: Næstum fullt tungl við Regúlus í Ljóninu

28. febrúar - Morgun: Minnkandi tungl og Spíka í Meyjunni á morgunhimninum

TUNGLIÐ

Nánari upplýsingar um tunglstöðu hvers dags má finna undir Tunglið í dag.

Tunglið Dagsetning Kvartil Fróðleikur
Tunglid-thridja-kvartil 2. febrúar
kl. 23:18
Þriðja kvartil
(minnkandi)
Rís í kringum miðnætti og er í suðri við sólarupprás. Sést á morgnana. Góður tími til að skoða gígana í sjónauka.
Nytt-tungl 9. febrúar
kl. 22:59
Nýtt tungl Milli Jarðar og sólar og sést því ekki á himni.
Tunglid-fyrsta-kvartil 16. febrúar
kl. 15:01
Fyrsta kvartil
(vaxandi)
Rís í kringum hádegi og er á suðurhimni við sólsetur. Góður tími til að skoða gígana í sjónauka.
Fullt-tungl 24. febrúar
kl. 12:30
Fullt tungl Rís við sólsetur, er hæst á himni um miðnætti, sést alla nóttina
  • Tungl næst Jörðu: 10. febrúar - 358.088 km
  • Tungl fjærst Jörðu: 25. febrúar - 406.312 km

NORÐURLJÓS

Á nýjum vef, icelandatnight.is, eru bestu upplýsingarnar um geimveðrið og norðurljósaútlit auk skýjahuluspár fyrir Ísland.

REIKISTJÖRNUR Á LOFTI

Merkúríus er ekki á lofti.

Venus er ekki á lofti.

Mars er ekki á lofti.

Júpíter er kvöldstjarna í Hrútnum. Hann er í suð-suðvestri við sólsetur í byrjun mánaðarins en suðvestri í lok mánaðarins.

Satúrnus er ekki á lofti.

Úranus er kvöldstjarna í Hrútnum. Nota þarf sjónauka til að sjá hann.

Neptúnus er kvöldstjarna í Fiskunum. Nota þarf sjónauka til að sjá hann en hann er mjög lágt á lofti og hverfur undir sjóndeildarhring skömmu eftir sólsetur.

LOFTSTEINADRÍFUR

Í febrúar eru engar meiriháttar loftsteinadrífur.

Stjornuskodun-scaledLÆRÐU MEIRA

Stjörnuskoðun fyrir alla fjölskylduna er leiðarvísir um stjörnuhiminninn yfir Íslandi.

Í bókinni eru kort þar sem merkt eru áhugaverð fyrirbæri að skoða með handsjónaukum eða litlum stjörnusjónaukum.

VANTAR ÞIG STJÖRNUSJÓNAUKA?

VILT ÞÚ KOMAST Í STJÖRNUSKOÐUN?

Á Hótel Rangá er besta aðstaða landsins til stjörnuskoðunar

Í litlu húsi með afrennanlegu þaki eru tveir fyrsta flokks rafdrifnir og tölvustýrðir sjónaukar. Stjörnuskoðunarhúsið er opið öll heiðskír kvöld milli kl. 21 og 22:30. Þangað eru öll velkomin og er aðgangur ókeypis, þótt auðvitað sé skemmtilegast að gera sér glaðan dag og snæða kvöldverð á staðnum. Um eina og hálfa klukkustund tekur að aka frá höfuðborgarsvæðinu á Hótel Rangá.

Ég mæli með að fjölskyldur komi á föstudegi eða laugardegi svo yngsta fólkið sé ekki þreytt í skólanum daginn eftir.

Sævar Helgi Bragason