Messier 75

Kúluþyrping í Bogmanninum

  • Messier 75, kúluþyrping, Bogmaðurinn
    Kúluþyrpingin Messier 75 í Bogmanninum. Mynd: NOAO/AURA/NSF
Helstu upplýsingar
Tegund: Lausþyrping
Stjörnulengd:
20klst 06mín 04,75s
Stjörnubreidd:
-21° 55´16,02"
Fjarlægð:
67.500 ljósár
Sýndarbirtustig:
+9,18
Stjörnumerki: Bogmaðurinn
Önnur skráarnöfn:
NGC 6864

Franski stjörnufræðingurinn Pierre Méchain uppgötvaði þyrpinguna aðfaranótt 28. ágúst árið 1780. Landi hans Charles Messier skoðaði þyrpinguna 5. og 18. október sama ár og bætti henni þá í skrá sína yfir þokukennd fyrirbæri á himninum sem líktust halastjörnum. Árið 1784 greindi William Herschel sundur stjörnur í þyrpingunni og lýsti henni sem lítilli útgáfu af Messier 3.

Messier 75 er mjög þétt kúluþyrping og um 130 ljósár á breidd. Hún er í um það bil 67.500 ljósára fjarlægð frá jörðinni og um 47.600 ljósár frá miðju Vetrarbrautarinnar. M75 er því með fjarlægustu fyrirbærum Messierskrárinnar.

Á himninum

Messier 75 er það sunnarlega á himinhvolfinu að hún rís aldrei hátt yfir sjóndeildarhringinn á Íslandi. Þó er með góðum vilja hægt að sjá hana við myrkur á hausthimninum, í lok ágúst og snemma í september. Nota þarf stjörnukort af Bogmanninum til að finna þyrpinguna sem er við austurjaðar merkisins. Sökum mikillar fjarlægðar þarf meðalstóra eða stóra áhugamannasjónauka til að greina stjörnur í henni.

Tengt efni

Heimildir

  1. Messier 75, SEDS Messier pages

  2. en.wikipedia.org/wiki/Messier_75

Hvernig vitna skal í þessa grein

  • Sævar Helgi Bragason (2012). Messier 75. Stjörnufræðivefurinn. http://www.stjornuskodun.is/stjornuskodun/djupfyrirbaeri/messierskrain/messier-75 (sótt: DAGSETNING).