NGC 1275

  • NGC 1275
    Sporvöluvetrarbrautin NGC 1275 í stjörnumerkinu Perseifi. Mynd: NASA/ESA og Andy Fabian (Cambridgeháskóla)
Helstu upplýsingar
Tegund: Sporvöluvetrarbraut
Stjörnulengd:
03klst 19mín 48,1s
Stjörnubreidd:
+41° 30′ 42"
Fjarlægð:
237 milljón ljósár
Sýndarbirtustig:
+12,6
Stjörnumerki: Perseifur
Önnur skráarnöfn:
Perseus A, Caldwell 24

Ensk-þýski stjörnufræðingurinn William Herschel uppgötvaði vetrarbrautina þann 20. október árið 1784.

NGC 1275 er nálægt miðju Perseifsþyrpingarinnar, vetrarbrautaþyrpingar í samnefndu stjörnumerki sem inniheldur næstum 200 vetrarbrautir. Hún er virk vetrarbraut sem geymir risasvarthol í kjarna sínum sem blæs kúlum sem gefa frá sér útvarpsbylgjur þegar þær lenda á gasi í kring.

Frá kjarnanum stefna líka gasþræðir sem ná út fyrir vetrarbrautina inn í margra milljóna gráðu heitt gas sem umlykur vetrarbrautina. Á myndinni sem fylgir þessari grein eru þræðirnir aðeins um 200 ljósár að breidd en allt að 200.000 ljósára langir. Svæðið á myndinni er um 260.000 ljósár í þvermál.

Heimildir

  1. Hubble sees magnetic monster in erupting galaxy

  2. http://en.wikipedia.org/wiki/NGC_1275

  3. Courtney Seligman - NGC 1275

  4. SIMBAD Astronomical Database - NGC 1275