NGC 2207

  • NGC 2207, gagnvirkar þyrilvetrarbrautir
    Gagnvirku þyrilvetrarbrautirnar NGC 2207 í stjörnumerkinu Stórahundi. Mynd: NASA/ESA
Helstu upplýsingar
Tegund: Gagnvirkar þyrilvetrarbrautir
Stjörnulengd:
06klst 16mín 22s
Stjörnubreidd:
-21° 22′ 22"
Fjarlægð:
114 milljón ljósár
Sýndarbirtustig:
+11,6
Stjörnumerki: Stórihundur
Önnur skráarnöfn:

Enski stjörnufræðingurinn John Herschel uppgötvaði báðar vetrarbrautirnar þann 24. janúar árið 1835.

NGC 2207 og IC 2163 eru að renna saman í eina. Ferlið tekur mörg hundruð milljónir ára en sterkt þyngdartogið frá NGC 2207 hefur feykt stjörnum og gasi burt frá IC 2163, um 100.000 ljósár út í geiminn.

Hingað til hafa þrjár sprengistjörnur sést í NGC 2207 (SN 1975A, SN 1999ec og SN 2003H).

Heimildir

  1. A Grazing Encounter between Two Spiral Galaxies

  2. http://en.wikipedia.org/wiki/NGC_2207

  3. Courtney Seligman - NGC 2207

  4. SIMBAD Astronomical Database - NGC 2207