Desember 2023

  • Hvað er á himni í desember 2023?
    Hvað er á himni í desember 2023?

Í desember skín Júpíter enn skærast á kvöldhimninum en Venus á morgunhimninum. Jólatunglið kviknar 12. desember. Besta loftsteinadrífa ársins nær hámarki 13.-14. desember og dag tekur að lengja eftir vetrarsólstöður 22. desember.

HELST Á HIMNI Í DESEMBER 2023

1. desember - Morgun: Venus skín skært á morgunhimninum við hlið Spíka, björtustu stjörnu Meyjunnar

9. desember - Morgun: Glæsilegt stefnumót tunglsins, Venusar og Spíka á morgunhimninum

12. desember - Kvöld: Jólatunglið kviknar

13-14. desember - Kvöld: Loftsteinadrífan Geminítar í hámarki

17. desember - Kvöld: Vaxandi tunglsigð skammt hjá Satúrnusi

21. desember - Kvöld: Tunglið við Júpíter

22. desember - Vetrarsólstöður á norðurhveli kl. 03:27

TUNGLIÐ

Nánari upplýsingar um tunglstöðu hvers dags má finna undir Tunglið í dag.

Tunglið Dagsetning Kvartil Fróðleikur
Tunglid-thridja-kvartil 5. desember
kl. 05:49
Þriðja kvartil
(minnkandi)
Rís í kringum miðnætti og er í suðri við sólarupprás. Sést á morgnana. Góður tími til að skoða gígana í sjónauka.
Nytt-tungl 12. desember
kl. 23:32
Nýtt tungl Milli Jarðar og sólar og sést því ekki á himni.

Jólatunglið, það tungl sem kviknar í þeim mánuði sem nær yfir Þrettándann.
Tunglid-fyrsta-kvartil 19. desember
kl. 18:39
Fyrsta kvartil
(vaxandi)
Rís í kringum hádegi og er á suðurhimni við sólsetur. Góður tími til að skoða gígana í sjónauka.
Fullt-tungl 27. desember
kl. 00:33
Fullt tungl Rís við sólsetur, er hæst á himni um miðnætti, sést alla nóttina
  • Tungl fjærst Jörðu: 4. desember - 404.346 km
  • Tungl næst Jörðu: 16 desember - 367.901 km

NORÐURLJÓS

Á nýjum vef sem opnaður verður árið 2024, icelandatnight.is, verða aðgengilegar langbestu upplýsingarnar um geimveðrið og norðurljósavirkni, skýjahuluspá fyrir Ísland og annað sem sjá má á himni.

REIKISTJÖRNUR Á LOFTI

Merkúríus er ekki á lofti.

Venus er morgunstjarna í Meyjunni í byrjun mánaðar, skammt frá Spíka, skærustu stjörnu merkisins. Laugardagsmorguninn 9. desember eiga tunglið og Venus fallegt stefnumót á himni. Venus lækkar á lofti og færist nær sól. Um miðjan mánuðinn færist hún yfir í Vogina.

Tunglid-venus-9des2023

Venus og tunglið á morgunhinni 9. desember 2023.

Mars er hinumegin sólar og því ekki á lofti.

Júpíter er kvöldstjarna í Hrútnum. Kvöldin 21. og 22. desember verður tunglið, þá vaxandi, skammt frá Júpíter.

Satúrnus er kvöldstjarna í Vatnsberanum  Hann er í suðri þegar orðið er dimmt upp úr klukkan 18:00 og sest í kringum klukkan 22:00. Að kvöldi 17. desember eiga tunglið og Satúrnus stefnumót.

Tunglid-saturnus-17des2023

Stefnumót Satúrnusar og tunglsins 17. desember 2023.

Úranus er kvöldstjarna í Hrútnum. Nota þarf sjónauka til að sjá hann.

Neptúnus er kvöldstjarna í Fiskunum. Nota þarf sjónauka til að sjá hann.

LOFTSTEINADRÍFUR

Loftsteinadrífan Geminítar er í hámarki miðvikudags- og fimmtudagskvöldin 13. og 14. desember. Tunglið truflar ekkert svo kjöraðstæður eru til að sjá hana, ef veður leyfir. Geminítar eru jafnan kröftugasta loftsteinadrífa ársins. 

Þegar mest lætur má búast við því að sjá nokkra tugi stjörnuhrapa á klukkustund, mögulega meira en hundrað. Drífan er best skömmu fyrir sólarupprás þega geislapunkturinn (punkturinn þaðan sem stjörnuhröpin virðast stefna frá) er hæst á lofti.

Í ár er jólatunglið nýkviknað og truflar birtan frá því þar af leiðandi ekki neitt. Til að sjá hana þarf ekkert annað en að horfa í átt að Tvíburunum á himninum. 

Geminitar-13des2023

Stjörnumerkið Tvíburarnir í austri klukkan 22 að kvöldi miðvikudagsins 13. desember.

Stjornuskodun-scaledLÆRÐU MEIRA

Stjörnuskoðun fyrir alla fjölskylduna er leiðarvísir um stjörnuhiminninn yfir Íslandi.

Í bókinni eru kort þar sem merkt eru áhugaverð fyrirbæri að skoða með handsjónaukum eða litlum stjörnusjónaukum.

VANTAR ÞIG STJÖRNUSJÓNAUKA?

VILT ÞÚ KOMAST Í STJÖRNUSKOÐUN?

Á Hótel Rangá er besta aðstaða landsins til stjörnuskoðunar

Í litlu húsi með afrennanlegu þaki eru tveir fyrsta flokks rafdrifnir og tölvustýrðir sjónaukar. Stjörnuskoðunarhúsið er opið öll heiðskír kvöld milli kl. 21 og 22:30. Þangað eru öll velkomin og er aðgangur ókeypis, þótt auðvitað sé skemmtilegast að gera sér glaðan dag og snæða kvöldverð á staðnum. Um eina og hálfa klukkustund tekur að aka frá höfuðborgarsvæðinu á Hótel Rangá.

Ég mæli með að fjölskyldur komi á föstudegi eða laugardegi svo yngsta fólkið sé ekki þreytt í skólanum daginn eftir.

Sævar Helgi Bragason