Stjörnuhiminninn í desember 2017

  • Horft til himins
    Horft til himins með handsjónauka

Tunglið í desember 2017

  • Fullt tungl: 3. desember kl. 15:47
  • Síðasta kvartil: 10. desember kl. 07:51
  • Nýtt tungl: 18. desember kl. 06:30
  • Fyrsta kvartil: 26. desember kl. 09:20
  • Tungl í jarðnánd: 4. desember – 357.492 km
  • Tungl í jarðfirrð: 19. desember – 406.603 km

Sjá nánar upplýsingar um tunglstöðu dag hvern .

Helst á himni í desember 2017

Bjarta stjarnan á morgunhimninum, rétt fyrir sólarupprás, er Júpíter.

  • 3. NÓTT Tunglið myrkvar Aldebaran í Nautinu.
  • 7. NÓTT Tunglið skammt norðan við Býflugnabúið í Krabbanum.
  • 13.-14 NÓTT Loftsteinadrífan Geminítar í hámarki.
  • 21. DAGUR Vetrarsólstöður á norðurhveli Jarðar.
  • 22.-23. NÓTT Loftsteinadrífan Úrsítar í hámarki.

Sjá einnig Norðurljósaspá

Stjörnukort fyrir desember 2017

Prentvænt stjörnukort fyrir desember 2017

Lærðu meira!

Stjornuskodun-1200x1419Stjörnuskoðun fyrir alla fjölskylduna fjallar um undrin sem sjá má á næturhimninum, frá sólsetri til sólarupprásar.

Greint er frá því helsta sem sést með berum augum frá Íslandi, allt frá næturregnbogum og norðurljósum til gervitungla og stjörnuhrapa, að himintunglunum ógleymdum.

Sagt er frá tunglinu, sólinni og reikistjörnunum og hvernig best er að skoða þessa nágranna okkar í sólkerfinu. Ítarlega er fjallað um stjörnuhimininn og yfir fimmtíu fyrirbæri sem auðvelt er að finna, ýmist með handsjónauka, litlum stjörnukíki eða kröftugum stjörnusjónauka.

Bókin geymir að auki fjölda glæsilegra mynda og vönduð stjörnukort.

Horfðu til himins – þar leynist fleira en þig grunar!

Heimildir

  1. Sky & Telescope, desemberhefti 2017
  2. Fred Espenak, astropixels.com.