Stjörnuhiminninn í febrúar 2018

  • Horft til himins
    Horft til himins með handsjónauka

Tunglið í febrúar 2018

  • Síðasta kvartil: 7. febrúar kl. 15:54
  • Nýtt tungl: 15. febrúar kl. 21:05
  • Fyrsta kvartil: 23. febrúar kl. 08:09
  • Tungl í jarðfirrð: 11. febrúar – 405.700 km
  • Tungl í jarðnánd: 27. febrúar – 363.933 km

Sjá nánar upplýsingar um tunglstöðu dag hvern .

Helst á himni í febrúar 2018

Bjarta stjarnan á morgunhimninum er Júpíter.

  • 1. NÓTT Tunglið skammt frá Regúlusi í Ljóninu
  • 7.-8. MORGUN Minnkandi tungl við Júpíter
  • 23. KVÖLD Tunglið við Aldebaran í Nautinu

Sjá einnig Norðurljósaspá

Stjörnukort fyrir febrúar 2018

Prentvænt stjörnukort fyrir febrúar 2018

Lærðu meira!

Stjornuskodun-1200x1419Stjörnuskoðun fyrir alla fjölskylduna fjallar um undrin sem sjá má á næturhimninum, frá sólsetri til sólarupprásar.

Greint er frá því helsta sem sést með berum augum frá Íslandi, allt frá næturregnbogum og norðurljósum til gervitungla og stjörnuhrapa, að himintunglunum ógleymdum.

Sagt er frá tunglinu, sólinni og reikistjörnunum og hvernig best er að skoða þessa nágranna okkar í sólkerfinu. Ítarlega er fjallað um stjörnuhimininn og yfir fimmtíu fyrirbæri sem auðvelt er að finna, ýmist með handsjónauka, litlum stjörnukíki eða kröftugum stjörnusjónauka.

Bókin geymir að auki fjölda glæsilegra mynda og vönduð stjörnukort.

Horfðu til himins – þar leynist fleira en þig grunar!

Heimildir

  1. Sky & Telescope, febrúarhefti 2018
  2. Fred Espenak, astropixels.com.