Stjörnuhiminninn í janúar 2018

  • Horft til himins
    Horft til himins með handsjónauka

Tunglið í janúar 2017

  • Fullt tungl: 2. janúar kl. 02:24
  • Síðasta kvartil: 8. janúar kl. 22:25
  • Nýtt tungl: 17. janúar kl. 02:17
  • Fyrsta kvartil: 24. janúar kl. 22:20
  • Fullt tungl: 31. janúar kl. 13:27
  • Tungl í jarðnánd: 1. janúar – 356.565 km
  • Tungl í jarðfirrð: 15. janúar – 406.464 km
  • Tungl í jarðnánd: 30. janúar - 358.994 km

Sjá nánar upplýsingar um tunglstöðu dag hvern .

Helst á himni í janúar 2017

Bjarta stjarnan á morgunhimninum, rétt fyrir sólarupprás, er Júpíter.

  • 2. NÓTT Fyrsta og nálægasta fulla tungl ársins („ofurmáni“)
  • 3. NÓTT Loftsteinadrífan Kvaðrantítar í hámarki, fullt tungl spillir mjög fyrir
  • 3. DAGUR Jörð næst sólu
  • 4. NÓTT Tunglið nálægt Regúlusi, björtustu stjörnu Ljónsins
  • 11. MORGUN Júpíter og Mars rétt fyrir neðan minnkandi sigðarlaga tungl
  • 27. KVÖLD Tunglið skammt frá Aldebaran í Nautinu

Sjá einnig Norðurljósaspá

Stjörnukort fyrir janúar 2017

Prentvænt stjörnukort fyrir janúar 2017 

Lærðu meira!

Stjornuskodun-1200x1419Stjörnuskoðun fyrir alla fjölskylduna fjallar um undrin sem sjá má á næturhimninum, frá sólsetri til sólarupprásar.

Greint er frá því helsta sem sést með berum augum frá Íslandi, allt frá næturregnbogum og norðurljósum til gervitungla og stjörnuhrapa, að himintunglunum ógleymdum.

Sagt er frá tunglinu, sólinni og reikistjörnunum og hvernig best er að skoða þessa nágranna okkar í sólkerfinu. Ítarlega er fjallað um stjörnuhimininn og yfir fimmtíu fyrirbæri sem auðvelt er að finna, ýmist með handsjónauka, litlum stjörnukíki eða kröftugum stjörnusjónauka.

Bókin geymir að auki fjölda glæsilegra mynda og vönduð stjörnukort.

Horfðu til himins – þar leynist fleira en þig grunar!

Heimildir

  1. Sky & Telescope, janúarhefti 2018
  2. Fred Espenak, astropixels.com.