Messier 18

Lausþyrping í Bogmanninum

  • Messier 18, lausþyrping, Bogmaðurinn
    Lausþyrpingin Messier 18 í Bogmanninu,. Mynd: 2MASS
Helstu upplýsingar
Tegund: Lausþyrping
Stjörnulengd:
18klst 19,9mín
Stjörnubreidd:
-17° 08"
Fjarlægð:
4.900 ljósár
Sýndarbirtustig:
+7,5
Stjörnumerki: Bogmaðurinn
Önnur skráarnöfn:
NGC 6613

Frakkinn Charles Messier uppgötvaði þyrpinguna þann 3. júní árið 1764 og færði í skrá sína yfir fyrirbæri sem líktust halastjörnum á himinhvolfinu.

Frá sjónarhóli okkar á jörðinni er Messier 18 á milli Omegaþokunnar (M17) og Bogmannsskýinu (M24). Hún er í um 4.900 ljósára fjarlægð, 17 ljósár í þvermál og talin í kringum 32 milljóna ára gömul.

Á himninum

Best er að skoða Messier 18 í gegnum litla stjörnusjónauka við litla stækkun. Hún er um 0,2 gráður í þvermál og sýnist því bæði gisin og innihalda fremur fáar stjörnur. Þyrpingin kemst aldrei mjög hátt á himininn yfir Íslandi. Best er að skoða hana á haustin, í lok ágúst og upphafi september. Nota þarf stjörnukort til að finna hana (sjá stjörnukort af Bogmanninum).

Tengt efni

Heimildir

  1. Messier 18, SEDS Messier pages

  2. en.wikipedia.org/wiki/Messier_18

Hvernig vitna skal í þessa grein

  • Sævar Helgi Bragason (2012). Messier 18. Stjörnufræðivefurinn. http://www.stjornuskodun.is/stjornuskodun/djupfyrirbaeri/messierskrain/messier-18 (sótt: DAGSETNING).