Messier 98

Þyrilþoka í Bereníkuhaddi

  • Messier 98, þyrilþoka, Meyjan
    Þyrilþokan Messier 98 í Meyjunni. Mynd: Adam Block/NOAO/AURA/NSF
Helstu upplýsingar
Tegund: Þyrilþoka
 Gerð: SAB(s)ab
Stjörnulengd:
12klst 13mín 48,3s
Stjörnubreidd:
+14° 54′ 01"
Fjarlægð:
60 milljón ljósár
Rauðvik:
z = -0,000474
Sjónstefnuhraði:
-142 ± 4 km/s
Sýndarbirtustig:
+11
Stjörnumerki: Bereníkuhaddur
Önnur skráarnöfn:
NGC 4192

Franski stjörnufræðingurinn Pierre Méchain uppgötvaði þokuna 15. mars árið 1781 ásamt Messier 99 og Messier 100 sem eru nærri. Landi hans og vinur Charles Messier mældi staðsetningu hennar á himninum og færði í skrá sína þann 13. apríl sama ár.

Messier 98 er í um 60 milljón ljósára fjarlægð frá jörðinni. Hún tilheyrir Meyjarþyrpingunni, safni meira en 1.300 vetrarbrauta. M98 stefnir í átt til okkar á 140 km hraða á sekúndu vegna þess að hún er að falla inn að miðju Meyjarþyrpingarinnar.

Á himninum

Messier 98 er eitt erfiðasta fyrirbæri Messierskrárinnar að skoða enda er hún dauf og á rönd. Til að finna hana á himninum þarf að styðjast við stjörnukort af Bereníkuhaddi. Gott er að byrja á að finna Messier 84 sem er nokkurn veginn mitt á milli stjarnanna Beta (Denebólu) í Ljóninu og Epsilon í Meyjunni. Notaðu minnstu stækkun sem gefur mesta sjónsvið. Þegar sú vetrarbraut er fundin er best að skanna svæðið hægt og rólega með sjónaukanum í norðurátt þar til Messier 99 er fundin. Frá henni heldur þú áfram örlítið í norður uns í sjónsviðinu sést daufur og mjór þokublettur. Nota þarf meðalstóra og stóra áhugamannasjónauka til að sjá þokuna.

Tengt efni

Heimildir

Hvernig vitna skal í þessa grein

  • Sævar Helgi Bragason (2012). Messier 98. Stjörnufræðivefurinn. http://www.stjornuskodun.is/stjornuskodun/djupfyrirbaeri/messierskrain/messier-98 (sótt: DAGSETNING).