Norður Ameríkuþokan

NGC 7000

  • Norður Ameríkuþokan, NGC 7000, ljómþoka
    Norður Ameríkuþokan NGC 7000 í stjörnumerkinu Svaninum. Mynd: Digitized Sky Survey/Davide De Martin
Helstu upplýsingar
Tegund: Ljómþoka
Stjörnulengd:
20klst 31mín 17,1s
Stjörnubreidd:
+44° 31′ 44"
Fjarlægð:
1600 ljósár
Sýndarbirtustig:
+4
Stjörnumerki: Svanurinn
Önnur skráarnöfn:
Sharpless 117, Caldwell 20

Ensk-þýski stjörnufræðingurinn William Herschel uppgötvaði þokuna þann 24. október árið 1786 frá Slough í Englandi.

Norður Ameríkuþokan er mjög stór og nær yfir svæði sem er fjórum sinnum stærra en fullt tungl á himninum. Yfirborðsbirta hennar er hins vegar svo lág að hún sést alla jafna ekki með berum augum. Handsjónaukar og stjörnusjónaukar með víð sjónsvið (um það bil 3°) sýna þokublett við góðar aðstæður. Með UHC síu sem bætir birtuskilin er hægt að koma auga á hana með berum augum.

Norður Ameríkuþokan og Pelíkanaþokan (IC 5070) í nágrenninu tilheyra sama rafaða vetnisskýi.

Fjarlægðin til þokunnar er ekki þekkt en hugsanlegt er að stjarnan Deneb lýsi hana upp. Sé það rétt er hún í um 1600 ljósára fjarlægð og um 100 ljósár í þvermál. Fjarlægðin er líklega á bilinu 1500 til 2200 ljósár.

Heimildir

  1. http://en.wikipedia.org/wiki/NGC_7000

  2. SIMBAD Astronomical Database - NGC 7000