Dælan

  • stjörnukort, stjörnumerki, Dælan
    Kort af stjörnumerkinu Dælunni
Helstu upplýsingar
Latneskt heiti:
Antlia
Bjartasta stjarna: α Antliae
Bayer / Flamsteed stjörnur:
9
Stjörnur bjartari +3,00:
0
Nálægasta stjarna:
DEN 1048-3956
(13,17 ljósár)
Messier fyrirbæri:
0
Loftsteinadrífur:
Engar
Sést frá Íslandi:
Nei
Í hágöngu:
Á ekki við

Uppruni

Dælan er eitt af fjórtán stjörnumerkjum á suðurhveli himins sem franski stjörnufræðingurinn Nicolas Louis de Lacaille bjó til árið 1756 eftir dvöl sína á Góðrarvonarhöfða í Suður Afríku. Lacaille nefndi merkið upphaflega la Machine Pneumatique eftir 17. aldar uppfinningu franska eðlisfræðingsins Denis Papin. Hann latneskaði það síðan í Antlia Penumatic eða Loftdæluna á korti sem hann gaf út árið 1763.

Engar goðsagnir tengjast merkinu, eðli málsins samkvæmt.

Stjörnur

Í Dælunni eru aðeins níu stjörnur bjartari en birtustig 5,5 en engin bjartari en birtustig +3.

  • α Antliae er bjartasta stjarnan í stjörnumerkinu Dælunni en ber ekkert formlegt nafn. Hún er í um það bil 370 ljósára fjarlægð frá jörðinni. Alfa Antliae er risastjarna af K-gerð sem breytir sýndarbirtustigi sínu örlítið, eða milli +4,22 og +4,29. Stjarnan er rúmlega tvisvar sinnum massameiri en sólin og 53 sinnum breiðari. Hún er um 3.900°C heit.

  • δ Antliae er fremur dauft tvístirni í stjörnumerkinu Dælunni (sýndarbirtustig +5,57) í um 480 ljósára fjarlægð frá jörðinni. Stærri stjarna kerfisins, Delta Antliae A, er af B-gerð, um 3,4 sinnum massameiri en sólin, 200 sinnum bjartari og næstum tvisvar sinnum heitari. Í gegnum sjónauka eru stjörnurnar bláar að sjá.

Djúpfyrirbæri

stjörnumerki, stjörnuhiminn, Dælan
Stjörnumerkið Dælan. Mynd úr Stellarium hugbúnaðinum

Mjög fá djúpfyrirbæri er að finna í Dælunni. Merkið inniheldur hvorki stjörnuþyrpingar né geimþokur en nokkrar vetrarbrautir og má þer helst nefna:

  • NGC 2997 er þyrilvetrarbraut í um 40 milljóna ljósára fjarlægð.

Stjörnukort

Stjörnukort af Dælunni í prentvænni útgáfu má nálgast hér.

Heimildir

  1. Ian Ridpath's Star Tales – Antlia the Air Pump

  2. http://en.wikipedia.org/wiki/Antlia

  3. http://stars.astro.illinois.edu/sow/alphaant.html