Stjörnuhiminninn í október 2017

  • Horft til himins
    Horft til himins með handsjónauka

Tunglið í október 2017

  • Fullt tungl: 5. október kl. 18:40
  • Síðasta kvartil: 12. október kl. 12:25
  • Nýtt tungl: 19. október kl. 19:12
  • Fyrsta kvartil: 27. október kl. 22:22
  • Tungl í jarðnánd: 9. október – 366.856 km
  • Tungl í jarðfirrð: 25. október – 405.152 km

Sjá nánar upplýsingar um tunglstöðu dag hvern .

Helst á himni í október 2017

Bjarta stjarnan á morgunhimninum, rétt fyrir sólarupprás, er Venus.

  • 5. MORGUN Venus og Mars þétt saman í austri (frá kl. 06)
  • 10. NÓTT Tunglið við Aldebaran í Nautinu
  • 17. MORGUN Örmjótt minnkandi tungl fyrir ofan Venus og Mars
  • 20-22. NÓTT Loftsteinadrífan Óríonítar í hámarki (~10 stjörnuhröp á klst þegar best lætur)

Sjá einnig Norðurljósaspá

Stjörnukort fyrir október 2017

Prentvænt stjörnukort fyrir október 2017

Lærðu meira!

Stjornuskodun-1200x1419Stjörnuskoðun fyrir alla fjölskylduna fjallar um undrin sem sjá má á næturhimninum, frá sólsetri til sólarupprásar.

Greint er frá því helsta sem sést með berum augum frá Íslandi, allt frá næturregnbogum og norðurljósum til gervitungla og stjörnuhrapa, að himintunglunum ógleymdum.

Sagt er frá tunglinu, sólinni og reikistjörnunum og hvernig best er að skoða þessa nágranna okkar í sólkerfinu. Ítarlega er fjallað um stjörnuhimininn og yfir fimmtíu fyrirbæri sem auðvelt er að finna, ýmist með handsjónauka, litlum stjörnukíki eða kröftugum stjörnusjónauka.

Bókin geymir að auki fjölda glæsilegra mynda og vönduð stjörnukort.

Horfðu til himins – þar leynist fleira en þig grunar!

Heimildir

  1. Sky & Telescope, októberhefti 2017
  2. Fred Espenak, astropixels.com.