Sumarþríhyrningurinn
Þótt stjörnurnar virðist allar álíka bjartar eru þær mjög ólíkar í reynd. Altair er nálægust af stjörnunum þremur í aðeins 17 ljósára fjarlægð og björt þar af leiðandi en engu að síður tífalt bjartari en sólin okkar. Vega kemur næst en hún er í 25 ljósára fjarlægð og 52 sinnum sinnum bjartari en sólin okkar. Fjarlægust er Deneb í um 1.400 ljósára fjarlægð og um 60.000 sinnum bjartari en sólin okkar! Deneb er risastjarna sem einn daginn endar ævi sína sem sprengistjarna.
| Stjarna | 
Stjörnumerki | 
Sýndarbirtustig | 
Ljósafl (sól = 1) | 
Litrófsflokkur | 
Fjarlægð (ljósár) | 
|---|---|---|---|---|---|
| Vega | 
Harpan | 
+ 0,03 | 
52 | 
A0 | 
25 | 
| Deneb | 
Svanurinn | 
+ 1,25 | 
60.000 | 
A2 | 
1.400 | 
| Altair | 
Örninn | 
+ 0,77 | 
10 | 
A7 | 
17 | 
Sumarþríhyrningurinn er hátt á lofti yfir Íslandi snemma hausts (í ágúst og september) en sést einnig vel hátt á lofti árla morguns á vorin. Vega er jafnframt fyrsta stjarnan sem sjáanleg er frá Íslandi í lok sumars. Í júlí og ágúst glittir í hana í hvirfilpunkti þegar birtan frá sólinni er hvað minnst. Á haustin sígur hann hægt og rólega neðar á himinninn og sést vart frá desember og ram í febrúar. Reyndar eru bæði Vega og Deneb pólhverfar frá Íslandi séð en ekki Altair.
Á suðurhveli jarðar er þríhyrningurinn „á hvolfi“ og lágt á lofti á veturna. Þar er sumarþríhyrningurinn því kallaður vetrarþríhyrningurinn.
   | 
| Sumarþríhyrningurinn séður að hausti frá Íslandi. Mynd: Stjörnufræðivefurinn |