Tilkynningar

Fyrirlestur um leitina að lífi í alheimi

Sævar Helgi Bragason 08. feb. 2013 Tilkynningar

Fimmtudaginn 14. febrúar heldur bandaríski stjörnufræðingurinn Jeffrey Bennett fyrirlestur sem hann nefnir „Leitin að lífi í alheimi“. Fyrirlesturinn fer fram í stofu M101 (einnig kölluð Bellatrix) í Háskólanum í Reykjavík og hefst klukkan 17:15. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir.

Ágrip: Er líf á öðrum hnöttum? Í fyrirlestri sínum fjallar stjörnufræðingurinn og rithöfundurinn Jeffrey Bennett um þessa spurningu og hvers vegna hún er orðin að vinsælu rannsóknarefni, sem og hvernig vísindamenn leita að bæði örveru- og vitsmunalífi í geimnum. Rætt er um hvers vegna möguleikinn á lífi utan jarðar hefur djúpstæðar afleiðingar í för með sér fyrir framtíð mannkyns, jafnvel þótt svo ólíklega vilji til að við séum ein í alheiminum. Fyrirlesturinn er byggður á nýlegri bók Bennetts, Beyond UFOs sem kom út á vegum Princeton University Press árið 2011 og hlotið hefur lof gagnrýnenda.

Jeffrey BennettJeffrey Bennett lauk doktorsprófi í stjarneðlisfræði frá Colorado háskóla í Bandarikjunum. Hann hefur mikla reynslu af rannsóknum og kennslu á öllum skólastigum, auk þess sem hann starfaði í tvö ár sem vísindamaður hjá NASA og hafði umsjón með þróun á Voyage sólkerfislíkaninu í National Mall í Washington, DC. Bennett er aðalhöfundur kennslubóka á háskólastigi í stjörnufræði, stjörnulíffræði, stærðfræði og tölfræði en bækurnar hafa selst í meira en milljón eintökum. Bækur Bennetts fyrir almenning, Beyond UFOs og Math for Life (2012) hafa fengið mjög góðar viðtökur. Að auki hefur Bennett skrifað nokkrar barnabækur. Heimasíða hans er www.jeffreybennett.com

  • Viðburður: Fyrirlestur um leitin að lífi í alheimi

  • Hvar: Háskólinn í Reykjavík, stofa M101 (Bellatrix)

  • Hvenær: Fimmtudagurinn 14. febrúar kl. 17:15