Tilkynningar

Fræðslumynd um stærsta sjónauka Jarðar

Sævar Helgi Bragason 19. mar. 2013 Tilkynningar

ALMA, sjónauki, útvarpssjónauki, útvarpsstjörnufræðiÍ tilefni af vígslu Atacama Large Millimeter/submillimeter Array (ALMA) þann 13. mars 2013 hefur ESO, í samvinnu við alþjóðlega samstarfsaðila sína, gefið út nýja fræðslumynd sem nefnist ALMA — In Search of Our Cosmic Origins. Í þessari 16 mínútna löngu mynd er sögð saga ALMA, allt frá fyrstu stigum verkefnsins fyrir nokkrum áratugum til fyrstu vísindaniðurstaðna.

Myndin er ríkulega skreytt glæsilegum myndskeiðum teknum úr þyrlu og tónlist sem Toomas Erm (ESO) samdi sérstaklega fyrir hana. Þú ferð í ferðalag upp á Chajnantor hásléttuna í 5.000 metra hæð yfir sjávarmál þar sem heimili ALMA er að finna í einstöku umhverfi Atacamaeyðimerkurinnar í Chile.

Í myndinni er sögð saga verkefnisins frá upphafi, þegar Evrópa, Norður Ameríka og austur Asía þróuðu sameiginlega nýjan, stóran sjónauka til mælinga á millímetra og hálfsmillímetra bylgjulengdum til að kanna köldustu og fjarlægustu fyrirbærin í alheiminum. Einnig er sagt frá leitinni að heppilegum stað undir sjónaukann og þeim tæknilegu og skipulagslegu áskorunum sem risaverkefnið stóð frammi fyrir við mjög harðneskjulegar aðstæður á afskekktum stað.

Sýndar eru myndir af aðstöðunni og tækninni sem ALMA reiðir sig á og útskýrt hvernig lofnetunum 66 var komið fyrir uppi á eyðimerkursléttunni. Myndin veitir einnig innsýn í þær áhugaverðu vísindarannsóknir sem sjónaukinn, sá öflugasti sinnar tegundar, mun færa okkur. Fyrstu niðurstöður hafa staðist væntingar vísindamanna en þær fengust áður en sjónaukinn var fullbúinn.

Sjáðu myndina með íslenskum texta hér