Háskóli Íslands, Stanford háskóli og NASA í samstarfi um þróun líkans af Vetrarbrautinni

Fyrirlestur um rannsóknirnar 5. október næstkomandi

Sævar Helgi Bragason 30. sep. 2010 Fréttir

Raunvísindastofnun Háskólans og Stanford háskóli hafa undirritað samkomulag um þróun líkans af Vetrarbrautinni til úrvinnslu gagna úr Fermi gervitungli NASA.

  • Fermi, gammageislun, Vetrarbrautin okkar

Raunvísindastofnun Háskólans og Stanford háskóli hafa undirritað samkomulag um þróun líkans af Vetrarbrautinni til úrvinnslu gagna úr Fermi gervitungli NASA. Verkefnisstjóri er Dr. Guðlaugur Jóhannesson stjarneðlisfræðingur. Guðlaugur heldur fyrirlestur um þessar rannsóknir og Fermi gervitunglið þriðjudagskvöldið 5. október næstkomandi klukkan 20:00 í stofu 132 í Öskju, Náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands.

Í ágúst síðastliðnum var skrifað undir samkomulag milli Raunvísindastofnunar Háskólans og Stanford háskóla um þróun á líkani af Vetrarbrautinni sem notað verður við úrvinnslu gagna úr Fermi gervitunglinu. Verkefnisstjóri á Íslandi er Dr. Guðlaugur Jóhannesson sem hefur unnið að hliðstæðum rannsóknum við Stanford háskóla undanfarin þrjú ár og verið virkur þátttakandi í Fermi-samstarfinu. Það er mikill fengur fyrir Raunvísindastofnun og Háskóla Íslands að þessu samkomulagi sem efla mun enn frekar rannsóknir í stjarnvísindum á Íslandi.

Um borð í Fermi-gervitunglinu er stór sjónauki, svonefndur Large Area Telescope (LAT), sem næmur er fyrir háorku gamma-geislun, en sjónaukinn er helsta mælitæki gervitunglsins. Fermi-tunglinu var skotið á loft 11. júní 2008 og hefur það frá þeim tíma aukið gríðarlega við þekkingu okkar á háorkugeislun utan úr geimnum. Á fyrstu mánuðum mælinganna fann tunglið til dæmis 16 áður óþekktar tifstjörnur og hefur síðan gert fjölda annarra uppgötvanna. Tímaritið Science taldi niðurstöður Fermi-mælinganna á meðal stærstu uppgötvanna ársins 2009, en mælitæki þess skanna alla himinhvelfinguna á um þremur klukkustundum.

Að Fermi rannsóknarverkefninu vinnur alþjóðlegur hópur um 400 vísindamanna frá yfir 10 löndum. Verkefnið er að mestu leyti fjármagnað af Geimferðastofnun Bandaríkjanna (NASA) og Orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna (DOE) en einnig taka virtar stofnanir í Frakklandi, Ítalíu, Japan og Svíþjóð stóran þátt í því. Nú þegar hafa niðurstöður mælinganna verið birtar í yfir 100 ritrýndum greinum í virtum tímaritum meðal annars í Science og Nature. Gangi allt að óskum mun gervitunglið halda áfram mælingum næstu átta árin.

Fermi, Guðlaugur Jóhannesson, gammageislun, vetrarbrautin
Dr. Guðlaugur Jóhannesson, stjarneðlisfræðingur. Mynd: Stjörnufræðivefurinn

Guðlaugur Jóhannesson útskrifaðist með doktorspróf í stjarneðlisfræði frá Háskóla Íslands árið 2006 undir handleiðslu Dr. Gunnlaugs Björnssonar og Dr. Einars H. Guðmundssonar og var það fyrsta doktorsprófið í stjarneðlisfræði frá skólanum. Eftir útskrift starfaði Guðlaugur sem sérfræðingur á Raunvísindastofnun Háskólans í eitt ár þar til hann gekk til liðs við Fermi-LAT samstarfið við Stanford háskóla sumarið 2007.

Erindi Guðlaugs er haldið á vegum Raunvísindadeildar Háskóla Íslands, Stjarnvísindafélags Íslands og Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. Það hefst klukkan 20:00 í stofu 132 í Öskju, Náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands. Aðgangur er öllum heimill og ókeypis.

Tenglar

Tengiliðir

Guðlaugur Jóhannesson
Raunvísindastofnun Háskólans

Dunhaga 3, 107 Reykjavík

Tölvupóstfang: gudlaugu[hjá]raunvis.hi.is

Sími: 849-8405

Gunnlaugur Björnsson
Raunvísindastofnun Háskólans

Dunhaga 3, 107 Reykjavík

Tölvupóstfang: gulli[hjá]raunvis.hi.is

Sími: 525-4792

Sævar Helgi Bragason
Formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness

Raunvísindastofnun Háskólans

Dunhaga 3, 107 Reykjavík

Tölvupóstfang: saevar[hjá]stjornuskodun.is

Sími: 896-1984

Þetta er fréttatilkynning Stjörnufræðivefsins stj1004