Evrópskt ALMA loftnet færir heildarfjölda loftneta á Chajnantor upp í 16

Undirbúningur hafinn fyrir fyrstu mælingar ALMA

Sævar Helgi Bragason 28. júl. 2011 Fréttir

Fyrsta evrópska ALMA loftnetið hefur verið komið fyrir á Chajnantor sléttunni í Chile. Fljótlega munu stjörnufræðingar hefja mælingar með þessum byltingarkennda sjónauka.

  • ALMA, Chajnantor, Atacama Large Millimeter/submillimeter Array, víxlmælir

Þann 27. júlí 2011 náði fyrsta evrópska loftnetið í Atacama Large Millimeter/submillimeter Array (ALMA) nýjum hæðum er það var flutt upp í starfsstöð sjónaukans á Chajnantor sléttunni sem er í 5.000 metra hæð yfir sjávarmáli. Loftnetið er 12 metra breitt og bætist í hóp fimmtán annarra loftneta sem alþjóðlegir aðstandendur ALMA verkefnisins hafa lagt til. Loftnetin eru því orðin 16 talsins.

Þótt 16 hljómi eins og hver önnur tala þýðir hún að nú geta fyrstu vísindalegu mælingarnar hafist. Sextánda loftnetið er þess vegna afar mikilvægur áfangi. Fljótlega munu stjörnufræðingar hefja nýjar rannsóknir með ALMA.

Smíði loftnetsins var í höndum evrópska AEM samstarfsins [1] samkvæmt samningi við ESO. Eftir prófanir sem stóðu yfir í sex mánuði var það loks flutt í þjónustumiðstöð stjörnustöðvarinnar í apríl síðastliðnum. Þjónustumiðstöðin (Operation Support Facility, OSF) er í hlíðum Andesfjallanna í Chile í 2.900 metra hæð og þar var mælitækjum kældum með fljótandi helíni komið fyrir í loftnetinu auk annars nauðsynlegs rafeindabúnaðar. Síðan flutti annar af tveimur risaflutningabílum ALMA loftnetið 28 km vegalengd um eyðimörkina upp í starfsstöð sjónaukans. Starfsstöðin er seinasti viðkomustaður loftnetsins á langri vegferð sem hófst þegar hlutar þess voru smíðaðir í verksmiðjum í Evrópu undir vökulu auga ESO.

„Það er frábært að sjá fyrsta evrópska ALMA loftnetið á Chajnantor sléttunni. Frá þessari skraufþurru sléttu verða þessi tæknilegu meistaraverk notuð til að rannsaka alheiminn“ segir Stefano Stanghellini, verkefnisstjóri ALMA loftnetanna hjá ESO.

Fyrstu mælingar ALMA eru fyrirhugaðar síðar á þessu ári. Þótt ALMA verði þá enn í smíðum eru loftnetin 16 þegar orðin betri en nokkur annar sambærilegur sjónauki. Stjörnufræðingar frá öllum heimshornum hafa lagt inn nærri 1000 umsóknir fyrir fyrstu mælingar. Umsóknirnar eru níu sinnum fleiri en hægt er að anna til að byrja með. Þær sýna þó þann mikla áhuga sem stjörnufræðingar hafa á ALMA, jafnvel á frumstigum verkefnisins.

Lokaskrefið frá þjónustumiðstöðinni upp á Chajnantor sléttuna er tiltölulega stutt en skiptir ALMA höfuðmáli. Sléttan er næstum 2.100 metrum hærri en þjónustumiðstöðin. Þar er loftið nógu þurrt til að hægt sé að mæla daufa millímetra og hálfsmillímetra geislun utan úr geimnum sem lofthjúpur jarðar gleypir annars auðveldlega.

Þótt þær aðstæður sem ríkja í starfsstöð sjónaukans á Chajnantor séu kjörnar fyrir stjarnvísindarannsóknir eru þær um leið afar erfiðar. Þar er helmingi minna súrefni en við sjávarmál svo erfitt er fyrir fólk að athafna sig. Þótt þar sé lítil tæknimiðstöð — ein hæsta bygging í heimi — vinnur fólk öll helstu verkefni í þjónustumiðstöðinni en þaðan er sjónaukinn líka starfræktur.

Þegar smíð ALMA lýkur í kringum árið 2013 verða loftnetin 66 talsins. Þau verða öll látin starfa saman sem ein heild og mynda stóran sjónauka sem mælir millímetra og hálfsmillímetra bylgjulengdir ljóss. ALMA mun hjálpa stjörnufræðingum að rannsaka uppruna sólkerfa, stjarna og jafnvel alheimsins sjálfs með því að mæla kalt gas og ryk í vetrarbrautinni okkar og utan hennar, sem og eftirgeislun Miklahvells.

ALMA er alþjóðlegt samstarfsverkefni Evrópu, Norður Ameríku, austur Asíu og Chile. ESO sér um smíði og rekstur ALMA fyrir hönd Evrópu en National Radio Astronomy Observatory (NRAO) fyrir hönd Norður Ameríku og National Astronomical Observatory of Japan (NAOJ) fyrir hönd austur Asíu. Samþætt stjórnun á smíði, prófun og rekstri ALMA er í umsjá Joint ALMA Observatory (JAO).

Evrópa leggur 25 loftnet til verkefnisins í gegnum ESO. Smíð allra evrópsku loftnetanna er í höndum evrópska AEM samstarfsins. Norður Ameríka leggur líka til önnur 25 loftnet og austur Asía 16.

Skýringar

[1] Í AEM samstarfinu eru Thales Alenia Space, European Industrial Engineering og MT-Mechatronics.

Frekari upplýsingar

Tengiliðir

Sævar Helgi Bragason
University of Iceland
Reykjavík, Iceland
Cell: +354-896-1984
Email: [email protected]

Stefano Stanghellini
ALMA Antenna Project Manager, ESO
Garching, Germany
Tel: +49 89 3200 6570
Email: [email protected]

Douglas Pierce-Price
Public Information Officer, ESO
Garching, Germany
Tel: +49 89 3200 6759
Email: [email protected]

Þetta er þýðing á fréttatilkynningu ESO eso1127.

Tengdar myndir

  • ALMA, Atacama Large Millimeter/submillimeter ArrayFyrsta evrópska loftnetið í Atacama Large Millimeter/submillimeter Array (ALMA) náði nýjum hæðum er það var flutt upp í starfsstöð sjónaukans á Chajnantor sléttunni sem er í 5.000 metra hæð yfir sjávarmáli. Loftnetið er 12 metra breitt og bætist í hóp fimmtán annarra loftneta sem alþjóðlegir aðstandendur ALMA verkefnisins hafa lagt til. Loftnetin eru því orðin 16 talsins. Þótt 16 hljómi eins og hver önnur tala, þýðir hún að nú geta fyrstu vísindalegu mælingarnar hafist. Sextánda loftnetið er þess vegna afar mikilvægur áfangi. Mynd: ESO/S. Rossi
  • ALMA, Atacama Large Millimeter/submillimeter ArrayFyrsta evrópska loftnet ALMA sjónaukans flutt upp í 5.000 metra hæð yfir sjávarmál á Chajnantor sléttuna í Chile með risaflutningabílnum Ottó. Mynd: ESO/S. Rossi
  • ALMA, Atacama Large Millimeter/submillimeter ArrayFyrsta evrópska loftnet ALMA sjónaukans flutt upp í 5.000 metra hæð yfir sjávarmál á Chajnantor sléttuna í Chile með risaflutningabílnum Ottó. Mynd: ESO/S. Rossi
  • ALMA, Atacama Large Millimeter/submillimeter ArrayFyrsta evrópska loftnet ALMA sjónaukans flutt upp í 5.000 metra hæð yfir sjávarmál á Chajnantor sléttuna í Chile með risaflutningabílnum Ottó. Mynd: ESO/S. Rossi
  • ALMA, Atacama Large Millimeter/submillimeter ArrayFyrsta evrópska loftnet ALMA sjónaukans í 5.000 metra hæð yfir sjávarmál á Chajnantor sléttunni í Chile. Mynd: ESO